Flögu bjargað fyrir horn 8. janúar 2009 06:00 Flaga, eitt af stærstu fyrirtækjum á sviði svefnrannsókna, er á gjörgæslu eftir hremmingar stærstu hluthafa.Fréttablaðið/E.Ól
Flaga rambaði á barmi gjaldþrots eftir hrun bankanna í október. Flaga Holdings, stærsti lánardrottinn félagsins, sem skráð er í Bandaríkjunum, breytti í kjölfarið skuldum í hlutafé til að forða félaginu frá gjaldþroti, fá upp í kröfur og koma í veg fyrir uppsagnir starfsfólks. Félagið á nú rúm 90 prósent hlutafjár í Flögu og hefur eign annarra nær þurrkast út. Ekki eru upplýsingar um það hverjir fara fyrir Flögu Holdings. Nýja Kaupþing á kauprétt að hlut í félaginu en hefur ekki nýtt hann. Fyrir björgunaraðgerðir var ekki útlit fyrir að Flaga gæti staðið við skuldbindingar sínar þar sem stærstu hluthafar voru ófærir um að setja fé í reksturinn. Í framhaldinu var óháð verðbréfafyrirtæki fengið til að gera virðismat á Flögu sem dró þá ályktun í ljósi stöðunnar að hlutaféð væri einskis virði. Í kjölfarið var hlutafé Flögu lækkað verulega til að mæta uppsöfnuðu tapi. Það var 720 milljónir króna en er nú hálf milljón. Lögmannsstofan Lex sendi um áramótin hluthöfum Flögu bréf í nafni Flögu Holdings og bauð málamyndagreiðslu, eina krónu fyrir hvern hlut í samræmi við lækkun hlutafjár. Samkvæmt því fær sá sem átti milljón hluti í Flögu sjö hundruð krónur. Starfsemi Flögu var flutt til Bandaríkjanna fyrir tæpum þremur árum og var flestu íslensku starfsfólki sagt upp. Engin starfsemi er hér í dag. Fyrirtækið er með stærstu svefnrannsóknarfyrirtækjum í heimi. Exista og gamla Kaupþing, viðskiptabanki Flögu, voru stærstu hluthafar félagsins. Flaga var skráð í Kauphöllina þar til í maí í fyrra. Bankinn var þjóðnýttur í bankahruninu í október síðastliðnum og hefur Exista glímt við verulega fjárhagsörðugleika upp frá því. - jab
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira