Viðskipti innlent

Ársverðbólgan mælist 11,9%

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 15,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,4% sem jafngildir 1,4% verðbólgu á ári (9,4% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Hagstofan hefur birt vísitölumælinguna á vefsíðu sinni. Þar segir að vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl 2009 er 336,0 stig og hækkaði um 0,45% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 311,6 stig og hækkaði hún um 0,84% frá mars.

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 8,2% (vísitöluáhrif 0,33%) og verð á fötum og skóm um 3,2% (0,19%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 1,6% (-0,23%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,19% og -0,04% af lækkun raunvaxta. Verð á mat og drykkjarvöru lækkaði um 0,7% (-0,10%).

Vísitalan er nú birt á nýjum grunni, mars 2009 og byggist hann á niðurstöðum úr útgjaldarannsókn Hagstofunnar árin 2005-2007. Auk hennar hefur Hagstofan notað ýmsar nýrri heimildir við vinnslu grunnsins.

Má þar nefna nýskráningar á bifreiðum, umsvif flug- og pakkaferða auk gagna um veltu smásöluverslana. Búðarvogum í dagvöruverslun hefur verið breytt. Þá hefur tillit verið tekið til breytts innkaupamynsturs árið 2008 og eru áhrif þeirrar breytingar 0,12% til lækkunar á vísitölunni. Að öðru leyti veldur endurnýjun grunnsins sem slík ekki breytingum á vísitölunni milli mars og apríl.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×