Greining Glitnis spáir 18,3% verðbólgu í febrúar 16. febrúar 2009 10:47
Greining Glitnis spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 1,1% í febrúar. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða taktur verðbólgu verða 18,3% og verðbólga mæld með þeim hætti því hjaðna um 0,3 prósentustig frá fyrri mánuði. Fjallað er um verðbólguspá greiningarinnar í Morgunkorninu. Þar segir að útsölulok setja svip sinn á mælingu febrúarmánaðar og gerir greiningin ráð fyrir föt og skór hækki um ríflega 11% vegna þessa, sem hefur áhrif til 0,5% hækkunar VNV. Áhrif útsöluloka á annan varning á borð við húsbúnað og tækjakost eru einnig nokkur. Við þetta bætast áhrif af gengislækkun krónu á seinni hluta síðasta árs. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir að húsnæðisliður vísitölunnar lækki lítillega. Margt bendir nú til að hátindi verðbólguskotsins sem staðið hefur undanfarið ár sé loks náð. Ef spá greiningarinnar um verðbólguþróun reynist á rökum reist mun VNV hækka um tæpt prósentustig samanlagt í mars og apríl. Á sama tímabili í fyrra hækkaði VNV hins vegar um tæp 5%, og því allar líkur á að 12 mánaða verðbólga hjaðni verulega á vormánuðum. kjölfarið gerir greiningin ráð fyrir að áfram dragi úr verðbólgu, og spáir því að verðbólga verði komin undir 5% að ári liðnu. Á seinni hluta spátímans telur greiningin að verðbólga reynist lítil og raunar eru töluverðar líkur á að verðhjöðnun eigi sér stað um skeið einhvern tíma á næstu misserum.
Mest lesið Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Viðskipti innlent Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Viðskipti innlent Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent Skipta dekkin máli? Samstarf Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Viðskipti innlent Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Sjá meira