Innlent

Segir Davíð ekki hafa búið yfir nægri reynslu og þekkingu

Sigríður Mogensen skrifar
Davíð Oddsson.
Davíð Oddsson.
Anne Sibert, sem situr í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands, segir að Davíð Oddsson hafi ekki búið yfir nægilegri þekkingu í hlutverki sínu sem Seðlabankastjóri til að koma í veg fyrir bankahrunið. Þá hafi hvorki forsætisráðherra, fjármálaráðherra né fjármálaeftirlitið gert neina tilraun til að hægja á vexti íslensku bankanna.

Anne Sibert er hagfræðiprófessor við Birkbeck College í London.

Í greininni sem birtist á fræðisíðunni VOX í dag segir Sibert að það sé erfitt fyrir lítið land eins og Ísland að finna nógu marga hæfileikaríka ráðamenn fyrir hvert ráðuneyti og í öðru lagi neyðist hver ráðamaður til þess að taka að sér fleiri verkefni og meiri skyldur en hann myndi gera í stærra samfélagi sem geti gert honum erfitt fyrir.

Þá segir Sibert að í löndum eins og á Íslandi hafi brestur í álframleiðslu, fiskveiðum eða fjármálageiranum hræðilegar afleiðingar, en ef hið sama gerist í stærri löndum séu afleiðingarnar ekki eins slæmar.

Sibert skrifar einnig um vankanta lítilla samfélaga hvað varðar kunningjaskap. Hún segir að kunningjasamfélagið leiði oft til spillingar. Sibert tjáir hún sig um þátt valinna stjórnmálamanna, Seðlabankastjóra og stjórnmálaflokka í hruninu.

Í þessu samhengi víkur hún sérstaklega að Davíð Oddssyni. Hún segir að Davíð sé mjög fjölhæfur maður og hafi haft viðamikla reynslu þegar hann tók við stöðu Seðlabankastjóra í október 2005. Hins vegar hafi Davíð því miður ekki búið yfir neinni hagfræðþekkingu eða sérþekkingu á fjármálamörkuðum og hafi því ekki búið yfir nægilegri þekkingu til að koma í veg fyrir hrunið og taka réttar ákvarðanir í kjölfar þess.

Sibert segir að til viðbótar við það virðist sem hvorki forsætisráðherra, fjármálaráðherra né fjármálaeftirlitið hafi gert neina tilraun til að hægja á vexti íslensku bankanna.

Að lokum hvetur Sibert ráðamenn Íslands til að vera í meiri samskiptum við ráðamenn í öðrum löndum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×