Segir Davíð ekki hafa búið yfir nægri reynslu og þekkingu Sigríður Mogensen skrifar 9. ágúst 2009 13:07 Davíð Oddsson.
Anne Sibert, sem situr í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands, segir að Davíð Oddsson hafi ekki búið yfir nægilegri þekkingu í hlutverki sínu sem Seðlabankastjóri til að koma í veg fyrir bankahrunið. Þá hafi hvorki forsætisráðherra, fjármálaráðherra né fjármálaeftirlitið gert neina tilraun til að hægja á vexti íslensku bankanna. Anne Sibert er hagfræðiprófessor við Birkbeck College í London. Í greininni sem birtist á fræðisíðunni VOX í dag segir Sibert að það sé erfitt fyrir lítið land eins og Ísland að finna nógu marga hæfileikaríka ráðamenn fyrir hvert ráðuneyti og í öðru lagi neyðist hver ráðamaður til þess að taka að sér fleiri verkefni og meiri skyldur en hann myndi gera í stærra samfélagi sem geti gert honum erfitt fyrir. Þá segir Sibert að í löndum eins og á Íslandi hafi brestur í álframleiðslu, fiskveiðum eða fjármálageiranum hræðilegar afleiðingar, en ef hið sama gerist í stærri löndum séu afleiðingarnar ekki eins slæmar. Sibert skrifar einnig um vankanta lítilla samfélaga hvað varðar kunningjaskap. Hún segir að kunningjasamfélagið leiði oft til spillingar. Sibert tjáir hún sig um þátt valinna stjórnmálamanna, Seðlabankastjóra og stjórnmálaflokka í hruninu. Í þessu samhengi víkur hún sérstaklega að Davíð Oddssyni. Hún segir að Davíð sé mjög fjölhæfur maður og hafi haft viðamikla reynslu þegar hann tók við stöðu Seðlabankastjóra í október 2005. Hins vegar hafi Davíð því miður ekki búið yfir neinni hagfræðþekkingu eða sérþekkingu á fjármálamörkuðum og hafi því ekki búið yfir nægilegri þekkingu til að koma í veg fyrir hrunið og taka réttar ákvarðanir í kjölfar þess. Sibert segir að til viðbótar við það virðist sem hvorki forsætisráðherra, fjármálaráðherra né fjármálaeftirlitið hafi gert neina tilraun til að hægja á vexti íslensku bankanna. Að lokum hvetur Sibert ráðamenn Íslands til að vera í meiri samskiptum við ráðamenn í öðrum löndum.
Mest lesið Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Fleiri fréttir Sóknarnefnd ræður úrslitum um örlög regnbogafánans Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út Sjá meira