Össur á undanþágu 5. ágúst 2009 06:00
Össur er eina fyrirtækið á lista Seðlabanka Íslands sem hefur undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál og hefur stundað viðskipti með krónur erlendis. Fréttablaðið sendi eftirfarandi fyrirspurn til allra fyrirtækja á lista Seðlabankans: Hafið þið verið þátttakendur á markaði með krónur á erlendum mörkuðum? Alls svöruðu 36 fyrirtæki fyrirspurn Fréttablaðsins, 35 svöruðu neitandi en eitt svaraði játandi, Össur hf.. Ekki fengust svör frá átta fyrirtækjum. Þau eru: 300P Holding, Avion Aircraft Trading, Flugfélagið Atlanta, Northern Ligths Leasing, Produmar ehf., Úthafsskip ehf., Víking Leiga og Woodbridge á Íslandi. Umtalsverður ávinningur getur verið af því fyrir fyrirtæki að stunda viðskipti með krónur á mörkuðum erlendis. Samkvæmt Reuters miðlunarkerfinu þá hefur gengi krónunnar í Evrópu verið að meðaltali um 230 krónur fyrir hverja evru í vetur. Gengið innanlands hefur hins vegar verið um 170 krónur fyrir hverja evru. Því geta útflutningsfyrirtæki fengið um 60 krónum meira að meðaltali fyrir hverja evru af gjaldeyri séu viðskiptin stunduð erlendis. Með þessu móti geta fyrirtæki lækkað innlendan kostnað þar sem þau kaupa krónur á lægra verði. Athuga ber að þessi viðskipti eru ekki lögbrot en þau geta haldið aftur af styrkingu krónunnar. Í svari frá Össuri segir að ráðstöfun á gjaldeyri fyrir krónur á erlendum mörkuðum sé umtalsvert lægri en þær fjárhæðir sem fyrirtækið átti á erlendum bankareikningum þegar höftin tóku gildi. Jafnframt segir að félagið hafi greitt um 19 prósent af innlendum kostnaði síðustu sex mánuði með þessu móti en félagið hefur skipt um 4,9 milljónum dala á erlendum mörkuðum frá því í október á síðasta ári. Lauslega áætlað mé telja að ávinningur félagsins sé um 200 milljónir króna. Fyrirtækið stundaði ekki viðskipti á þessum markaði fyrir hrun.bta@frettabladid.is
Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira