Áfram rætt um aðildarumsókn 11. júlí 2009 10:00 Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Síðari umræða um þingsályktun ríkisstjórnarinnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið stóðu fram undir miðnætti í nótt og hefjast aftur klukkan hálf ellefu. Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins, sem talin er vera mikill andstæðingur Evrópusambands aðildar, lagði í gær fram breytingartillögu við ályktunina, þar sem ítarlegra er farið í skilyrði fyrir aðild í tillögu greininni sjálfri. Í tillögugreininni eins og hún var afgreidd frá meirihluta utanríkismálanefndar segir: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skal ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar." Breytingartillga Vigdísar hljómar hins vegar eftirfarandi: „Alþingi ályktar að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á grundvelli samningsumboðs frá Alþingi sem tryggi hagsmuni almennings og atvinnulífs og þá sérstaklega sjávarútvegs og landbúnaðar. Þá verði fullveldi og óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar grundvallarkrafa í þeim viðræðum. Viðræðuferlið verði opið og lýðræðislegt og leiði viðræðurnar til samnings skal íslenska þjóðin taka afstöðu til aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu í kjölfar upplýstrar umræðu." Að auki vill Vigdís herða á skilyrðum í greinargerð ályktunarinnar, m.a. að skýr og einhliða úrsagnarréttur úr Evrópusambandinu verði hluti aðildarsamnings. Meirihluti utanríkismálanefndar gerði nokkrar breytingar á tillögugrein málsins og skilaði einnig frá sér um 40 síðna greinargerð, þar sem stjórnvöldum er settur vegvísir í viðræðum við Evrópusambandið og helstu hagsmunir Íslendinga, svosem í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum eru tíundaðir. Ólíklegt má telja að breytingartillga Vigdísar verði samþykktar enda tók það meirihluta utanríkismálanefndar sex vikur að komast að niðurstöðu um hana. Tveir þingmenn Framsóknarflokksins lýstu í gær yfir stuðningi við tillögu ríkisstjórnarinnar og töldu að með henni væri skilyrðum Framsóknarflokksins fyrir aðildarviðræðum mætt. Engu að síður má búast við að fimm til sjö af níu þingmönnum Framsóknar greiði atkvæði gegn aðildartillögunni.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent Fleiri fréttir Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Sjá meira