Meira jafnvægi er að komast á einkaneyslu landsmanna 10. desember 2009 10:58
Greining Íslandsbanka segir að nýlegar hagtölur bendi til þess að einkaneysla sé að komast í meira jafnvægi en hún hefur verið síðan fjármálakreppan skall á Ísland af fullum þunga í fyrrahaust. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að samdrátturinn í smásöluveltu er að minnka og var samdrátturinn núna í nóvember nokkuð minni en verið hefur að jafnaði undanfarna 12 mánuði. Þannig var veltan í dagvöruverslun 3,6% minni að raunvirði núna í nóvember en í sama mánuði í fyrra en að jafnaði hefur samdrátturinn verið 6,7% undanfarna 12 mánuði. Samdrátturinn er samt umtalverður enn og sérstaklega í þeim vörutegundum sem næmastar eru fyrir þróun ráðstöfunartekna heimilanna. Rannsóknasetur verslunarinnar birti tölur um þetta í gær en setrið spáir því að velta í smásölu í nóvember og desember verði óbreytt frá því í fyrra á föstu verðlagi. „Ofangreindar tölur er í samræmi við aðrar hagtölur á borð við kortaveltu og væntingar neytenda sem hafa birst undanfarið og gefið hafa vísbendingar um að meira jafnvægi sé að komast í einkaneyslu. Í október síðastliðnum var minnsti samdráttur á ársgrundvelli sem mælst hefur í kortaveltu síðan í september 2008," segir í Morgunkorninu. „Jafnframt virðast væntingar neytenda eitthvað vera að þokast í átt að meiri jákvæðni. Þannig mældist Væntingavísitala Gallup í nóvember töluvert hærri en hún var á sama tíma fyrir ári, auk þess sem gildi hennar var töluvert hærra en það hefur verið að jafnaði frá hruni bankanna. Hins vegar gætir enn töluverðrar svartsýni, auk þess sem atvinnuleysi fer vaxandi og ráðstöfunartekjur heimilanna minnkandi sem má telst seint vera hvetjandi fyrir verslun. Athyglisvert verður að sjá hvernig jólaverslunin verður en samkvæmt fréttatilkynningu Rannsóknarseturs verslunarinnar virðist hún fara rólega af stað og spáir því að velta í smásöluverslun verði óbreytt frá því í fyrra á föstu verðlagi."
Mest lesið Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira