Hinir ábyrgu sýna almenningi löngutöng Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. janúar 2009 10:48 Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði.
Það þarf að teikna upp nýtt hagkerfi, með nýjum leikstjórnendum og nýjum leikreglum, sagði Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræði, í ræðu sinni á fundi Radda fólksins á Austurvelli í gær. Gylfi sagði að flestir Íslendingar vildu sterkan opinberan geir og sterkan einkageira. Einkageiran þyrfti hins vegar að losa við meinsemdir útrásarvíkinga, með öll sín eignarhaldsfélög, „Group", bókhaldsbrellur, vogaðar stöður, skattaskjól, eigna‐ og stjórnunartengsl og pólitísk tengsl. „Þetta er hluti af því sem fara þarf á öskuhauga sögunnar. Ekkert af þessu skapaði nein raunveruleg verðmæti. Í stað þess getur komið blómlegt atvinnulíf með fleiri og smærri fyrirtækjum, dreifðara en einfaldara eignarhaldi, meiri valddreifingu, meira gagnsæi, hraustlegri samkeppni, meiri nýsköpun, fleiri tækifærum fyrir alla. Opið, sanngjarnt og heilbrigt efnahagslíf. Það þarf mörgu að breyta. Fyrst hugarfarinu. Sú hugmyndafræði sem kom okkur í núverandi stöðu er andlega gjaldþrota. Þeir sem fóru fyrir henni þurfa að víkja strax af sviðinu og láta öðrum eftir uppbygginguna. Hvort sem þeir eru í stjórnmálum, stjórnkerfinu, fyrirtækjarekstri, fara fyrir hagsmunasamtökum eða voru bara í klappliðinu," sagði Gylfi. Hann sagði að fyrsta skrefið til fyrirgefningar væri að þetta fólk rétti fram sáttarhönd og axlaði ábyrgð með því að víkja. „Því miður hefur lítið sést til þeirrar sáttahandar enn þá. Það glittir bara í löngutöng," bætti Gylfi við. Gylfi birtir ræðuna á vefsíðu sinni og með því að smella á hlekkinn hér að neðan er hægt að lesa hana í heild.
Mest lesið Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Viðskipti innlent Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Atvinnulíf Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Viðskipti innlent Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Sjá meira