Innlent

Líklega farið fram á gæsluvarðhald yfir Grettisgötuhrottum

Friðrik Smári Björgvinsson hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að yfirheyrslur yfir sex Litháum sem grunaðir eru um að hafa veitt samlanda sínum lífshættulega áverka hafi farið fram í gær og í morgun og að þeim verði framhaldið í dag.

Ekki er búið að ákveða hvort farið verður fram á gæsluvarðhald en sagðist Friðrik reikna með því að það verði gert í einhverjum tilfellum. Svæfingalæknir á Landspítalanum í Fossvogi segir að stefnt sé að því að vekja manninn sem slasaðist síðar í dag en vildi lítið tjá sig um eðli áverkanna eða alvarleika.
















Tengdar fréttir

Haldið sofandi í öndunarvél

Karlmanni á þrítugsaldri er haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum í Fossvogi eftir að hafa orðið fyrir árás í húsi á Grettisgötu í Reykjavík um miðjan dag í gær. Svæfingalæknir á spítalanum segir að stefnt sé að því að vekja hann síðar í dag. Sex manns eru í haldi lögreglu grunaðir um aðild að árásinni.

Karlmaður í lífshættu eftir misþyrmingar

Tæplega þrítugur litháískur karlmaður slasaðist lífshættulega um miðjan dag í gær þegar til átaka kom í húsi við Grettisgötu í Reykjavík. Sex manns voru handteknir í kjölfarið, fjórir karlmenn og tvær konur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×