Innlent

Flest störf í skólunum mönnuð

kjartan 
magnússon
kjartan magnússon

Vel hefur gengið að ráða í lausar stöður í grunnskólum Reykjavíkurborgar, að sögn Kjartans Magnússonar, formanns menntaráðs.

„Almennt séð eru skólarnir fullmannaðir," segir hann og kveður hljóðið gott í skólastjórum hvað þetta varði.

Staðan nú er önnur en fyrir ári þegar illa gekk að manna lausar stöður. Þá vantaði sjötíu kennara um þetta leyti árs.

Í júní voru auglýstar nokkrar lausar stöður sérhæfðra kennara við grunnskólana. Að sögn Kjartans var svörun við þeim auglýsingum góð.- bþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×