Evrópusambandsaðild rædd fyrir luktum dyrum 31. janúar 2008 18:24 Vilhjálmur Egilsson.
Forystumenn Samtaka atvinnulífsins ræddu fyrir luktum dyrum á Hótel Loftleiðum í dag hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Framkvæmdastjóri samtakanna, Vilhjálmur Egilsson, segir að menn vilji ekki afskrifa þann kost að hægt verði að taka upp evru án þess að ganga í sambandið en það sé að verða almennari skoðun að evran sé betri en krónan.Það er til marks um hversu viðkvæmt málið er innan Samtaka atvinnulífsins að menn treystu sér ekki til að ræða það fyrir opnum tjöldum. Dyrum var lokað. Og í kaffihléinu höfnuðu bæði talsmaður iðnaðarins og útvegsins viðtali en samtök þeirra hafa verið á öndverðum meiði í afstöðunni. Aðeins framkvæmdastjórinn, Vilhjálmur, vildi tjá sig við Stöð 2.Samantekt á heimasíðu samtakanna um fund þeirra um evruna fyrir tveimur vikum er undir fyrirsögninni Tími krónunnar liðinn.Formenn ríkisstjórnarflokkanna beggja hafa lýst þeirri skoðun að Ísland geti ekki tekið upp evru án þess að ganga í Evrópusambandið.Ljóst er að afstaða Samtaka atvinnulífsins til Evrópusambandsins getur haft úrslitaáhrif á stjórnmálaumræðuna, ekki síst innan Sjálfstæðisflokksins. Það er mat margra að snúist atvinnulífið almennt til fylgis við aðildarumsókn þá sé líklegt að stærsti stjórnmálaflokkurinn fylgi í kjölfarið.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira