Norsk sveitarfélög fá úr þrotabúi Terra Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. maí 2008 05:00 Álasund í Noregi Í Noregi er víða ægifagurt um að lítast. Átta sveitarfélög sem fjárfest höfðu í undirmálalánaskuldabréfavafningum fá til baka um þriðjung upphæðarinnar sem fjárfest var fyrir. Markaðurinn/ÓKÁ
Skiptastjóri norska verðbréfamiðlunarfyrirtækisins Terra Securities ASA hefur viðurkennt kröfu átta norskra sveitarfélaga í þrotabú fyrirtækisins, að því er norskir fjölmiðlar greindu frá í gær. Krafan er til komin vegna fjárfestingar sveitarfélaganna í skuldabréfavafningum tengdum bandarískum undirmálslánum fyrir 1.451 milljón norskra króna, eða tæpa 22 milljarða íslenskra króna. Í þrotabúinu fyrirfinnast hins vegar ekki nema 725 milljónir norskra króna, eða sem nemur tæpum ellefu milljörðum íslenskra króna. Skuldabréfavafningarnir voru seldir með miklum afföllum, en samkvæmt úrskurði skiptastjórans skal söluandvirðið renna til sveitarfélaganna sem í þeim höfðu keypt. Heildarendurgreiðsla nemur þó ekki nema 434,8 milljónum norskra króna (6,5 milljörðum íslenskra króna) eða tæpum þriðjungi af heildarfjárfestingu sveitarfélaganna. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Bremanger, Hattfjelldal, Haugesund, Hemnes, Kvinesdal, Narvik, Rana og Vik. Þau eru gjarnan nefnd Terra-sveitarfélögin, en mikið hneykslismál varð úr þegar upplýstist um fjárfestingar þeirra í nóvember í fyrra. Terra Securities hafði milligöngu um kaup sveitarfélaganna í skuldabréfavafningum vestanhafs, en vafningarnir voru í eigu bandaríska stórbankans Citigroup. Heildarkröfur í þrotabú Terra Securities nema 1,7 milljörðum norskra króna og eru þar sveitarfélögin átta langfyrirferðarmest, með 85 prósent krafnanna. Heildarfjöldi krafna er hins vegar 393 að því er frá er greint í frétt Aftenposten. Þegar dregin hefur verið frá greiðslan sem samþykkt var til sveitarfélaganna eru eftir 317,5 milljónir norskra króna í þrotabúinu. Sú greiðsla skiptist á milli sveitarfélaganna og annarra kröfuhafa í hlutfalli við kröfur. Heildarendurgreiðsla til sveitarfélaganna átta nemur því að sögn Aftenposten 502,8 milljónum norskra króna, eða rúmum 7,5 milljörðum íslenskra króna.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent