Matur

Óvenjulegur brunch

Brunch

Hálfur pakki af makkarónum soðinn ásamt niðurskornum lauknum. 1 tsk. salt sett út í.

Sósa út í réttinn:

3 msk. smjörlíki mýkt á vægum hita í potti. 4 msk. hveiti hrært útí. Hálfum bolla af soðinu af makkarónunum hellt útí og hálfum bolla af mjólk einnig. Síðan er 1/2 dós af tomato paste blandað saman við og að lokum einnig hálfur bolli af rifnum osti.

3 brauðsneiðar skornar í litla bita og rétt ristað á pönnu með smá smjöri eða olíu.

Allt hráefnið er sett í eldfast mót. Fyrst er túnfiskurinn settur í botninn. Pastanu (makkarónunum) og lauknum hellt yfir og síðan sósan sett ofan á. Að lokum er rifinn osturinn settur á og brauðteningum raðað efst.

Mótið sett í ofn í 20 mínútur við ca. 200 gráður.







Makkarónur og ostur Hálfur pakki af makkarónum 1 dós túnfiskur 1 laukur 3msk. smjörlíki 4msk. hveiti hálfur bolli mjólk ostur eftir smekk brauðbitar salt eftir smekk
Snittur

Sýrður rjóminn settur á kexið og síðan smá af kavíar ofan á.

Einfaldur brauðréttur í ofni:

Brauðsneiðar

ostsneiðar

smjör

Brauðsneiðar settar í ofnfast fat. Sneiðarnar smurðar með smá smjöri. Epli skorin í sneiðar og lagt ofan á brauðið og að lokum eru ostasneiðar settar ofaná.

Sett í ofninn og bakað þar til ostur er bræddur.

Ritz kex sýrður rjómi svartur kavíar
Kertasalat

1 salatblað sett á hvern disk

ananassneið sett á hvert sallatblað

hálfur banani settur standandi í gatið á ananasnum

teskeið af mayonnaise sett ofan á bananann

kirsuber sett á toppinn á hverjum banana






Fleiri fréttir

Sjá meira


×