Búast við 15,7 prósenta verðbólgu í október 24. október 2008 17:17
Greiningardeild Kaupþings spáir því að verðbólga í október reynist 15,7 prósent og hækki þannig um tæp tvö prósentustig á milli mánaða. Nýjar verðbólgutölur verða birtar á mánudag og í hálffimmfréttum Kaupþings kemur fram að greiningardeildin geri ráð fyrir að verðlag hækki um um það bil tvö prósent. Spáin gerir enn fremur ráð fyrir að verðbólga nái ekki hámarki fyrr en á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. ,,Ef gengi krónunnar mun ekki veikjast frekar má búast við að verulega hægi á mánaðarhækkunum verðbólgu á seinni hluta 2009. Þó eru litlar líkur á að tólf mánaða verðbólga verði í námunda við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans fyrr en í upphafi árs 2010. Hafa ber í huga að óvissan um verðlagsþróun er nú meiri en oft áður og er hættan á frávikum mikil," segir greiningardeildin. Bent er á að ef spáin gangi eftir muni veiking krónunnar ekki skila sér jafngreiðlega út í verðlag og til að mynda í apríl síðastliðnum. ,,Ástæðan er annarsvegar að eldsneytisverð og kostnaður vegna íbúðakaupa eru nú til lækkunar verðlags ólíkt því sem var framan af árinu. Að auki hefur orðið breyting á aðstæðum kaupmanna sem gæti haft áhrif á verðlagningu. Kaupmenn hafa t.a.m. ekki óhindrað aðgengi að gjaldeyri til að innleysa vörur. Nokkuð er um að því hafi verið frestað að taka inn nýja vöru og gæti því orðið meiri töf en venjulega á áhrifum gengisveikingar á verðlag. Loks er ljóst að snarminnkandi eftirspurn neytenda dregur úr hvata kaupmanna til verðhækkana," segir í hálffimmfréttunum. Gerir greiningardeildin hins vegar ráð fyrir að matvara og fatnaður muni að líkindum hafa kröftug áhrif til hækkunar verðlags.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira