Kaupþingskóngar gætu tapað 281 milljón á starfslokagreiðslum 24. október 2008 16:58 Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson.
Í ársskýrslu Kaupþings frá árinu 2007 kemur fram að ef stjórnarformaður og forstjóri bankans segi upp störfum fái þeir greidd laun næstu 12 mánuði. Hætti þeir hinsvegar störfum af öðrum ástæðum fá þeir greidd laun í 48 mánuði frá því að þeir hætta störfum. Steinar Þór Guðgeirsson formaður skilanefndar Kaupþings þekkir ekki til þessa ákvæðis í samningi forstjórans og stjórnarformannsins og vill ekkert láta eftir sér hafa um málið. Í kjölfar yfirtöku ríkisins á Kaupþingi og stofnun hins Nýja Kaupþings létu þeir Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri og Sigurður Einarsson stjórnarformaður af störfum. Samkvæmt fyrrnefndri ársskýrslu kemur fram að laun þeirra Hreiðars og Sigurðar séu 70,5 milljónir á ári sem gerir um 5,8 milljónir á mánuði. Samkvæmt ráðningasamningi fengju þeir félagar því 5,8 milljónir á mánuði næstu fjögur árin sem gerir um 282 milljónir á mann. Samkvæmt heimildum Vísis þá gilda þær reglur sem fram koma í ráðningasamningum viðkomandi sé þeim sagt upp störfum. Launin sem viðkomandi fær á umræddum uppsagnarfresti tekur mið af ráðningasamningi en ef bankinn verður úrskurðaður gjaldþrota horfir málið öðruvísi við, því þá eiga þeir félagar kröfu í þrotabúið. Ef ekkert fæst upp í slíka kröfu væri næsta skref fyrir þá félaga að fá greiðslu úr ábyrgðarsjóði launamanna sem er að hámarki 345 þúsund krónur á mánuði og takmarkast við þrjá mánuði. Það er því spurning hvort þeir félagar fái 282 milljónir líkt og ráðningasamningurinn segir til um eða 1.035.000 verði bankinn lýstur gjaldþrota og þeir fái ekkert upp í þá kröfu sem þeir eiga í þrotabúið.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira