Viðskipti innlent

Davíð er mættur á fund viðskiptanefnar

Davíð Oddsson seðlabankastjóri er mættur á fund viðskiptanefndar alþingis. Hann gekk þar inn nú skömmu fyrir klukkan níu í morgun.

Reiknað er með að meðal þeirra spurninga sem nefndin vilji fá svarað er hvað upplýsingum Davíð lumar á um ástæður þess að bresk stjórnvöld beittu hryðjuverkalöggjöf sinni gegn íslensku bönkunum.

Eins og kunnugt er lét Davíð að því liggja í frægri ræðu á fundi Viðskiptaráðs um daginn að hann vissi um ástæður Breta fyrir þessari hegðun.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×