Íslendingum nokkrar leiðir færar í myntmálum 12. október 2008 20:53 „
Þetta er svipað og maður hefði sett farsímann sinn í þvottavélina og stillt hana á suðuþvott,“ sagði Þórólfur Matthíasson hagfræðingur þegar Sigmundur Ernir Rúnarsson spurði hann hvort útséð væri með krónuna en Þórólfur var gestur í Mannamáli Sigmundar í kvöld. Þórólfur sagði Íslendingum fært að fara nokkrar leiðir í myntmálum sínum. Hægt væri að halda áfram með krónuna og hafa hana á föstu gengi, við gætum haldið áfram með einhvers konar fljótandi gengi, haldið áfram með verðbólgumarkmið eða leitað út fyrir landsteinana. Ef menn festu gengið yrðu menn að festa það tiltölulega hátt. Þetta sagði Þórólfur hafa gerst í Þýskalandi á sínum tíma og hefði ekkert gott haft í för með sér en verið gert af pólitískum ástæðum. „Ég mun ekki eiga minn sparnað í íslenskum krónum framar," sagði Þórólfur og taldi sig hafa lært sína lexíu. Þegar Sigmundur innti hann álits á því hvort hann teldi mögulegt að íslenska krónan yrði tengd þeirri norsku svaraði hann því til að það yrði þá að vera á grundvelli samkomulags milli ríkisstjórna landanna og kannski væri eðlilegast að við semdum við ESB um að við tækjum upp evru strax og fengjum eins konar neyðaraðgang af því að við værum öðruvísi stödd en nokkur þjóð hefði nokkurn tímann verið.
Mest lesið Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Viðskipti innlent Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Skipta dekkin máli? Samstarf Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Góður hárblástur og smink á morgnana á undanhaldi Atvinnulíf Fleiri fréttir Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Sjá meira