Krónan hefur veikst um 14 prósent í september 23. september 2008 20:58
Það sem af er september hefur gengi krónunnar veikst um 14 prósent og hefur hún veikst á 13 af 17 viðskiptadögum mánaðarins. Frá þessu er greint í hálffimmfréttum Kaupþings í tilefni þess að gengisvítitala krónunnar hefur aldrei verið hærri og gengi krónunnar því aldrei lægra. Veiking dagsins nemur 3,1 prósenti sem þýðir að gengi Bandaríkjadals er 94,6 krónur, evru 139,5 og punds 175,6 krónu. Greiningardeild Kaupþings segir ekki liggja fyrir hvað valdi veikingu krónunnar. ,,Þó er óhætt að segja að afar fátt styðji við krónuna í augnablikinu. Á meðan óvissa ríkir um afleiðingar nýjustu aðgerða bandaríska seðlabankans má ætla að stöðutaka í krónunni muni minnka. Ljóst er að mikil áhættufælni á erlendum mörkuðum hefur komið sér illa fyrir hávaxtamyntir líkt og íslensku krónuna. Sömuleiðis hefur erfitt aðgengi viðskiptabankanna að erlendu lausafé komið mjög sterkt fram á gjaldmiðlaskiptamarkaði - þar sem ekki eru lengur krónuvextir í boði nema að litlu leyti," segir greiningardeildin. Þetta endurspegli þó svipaða þróun og á mörgum öðrum gjaldeyrismörkuðum þar sem skortur á dollurum og evrum hafi verið mikill og álag hækkað mikið. ,,Seðlabankar hafa víða brugðist við vandanum með að bjóða bönkum upp á endurhverf viðskipti í annari mynt en heimagjaldmiðli. Skilvirkni gjaldeyrismarkaða hefur víða annars staðar batnað í kjölfarið," segir í hálffimmfréttum og bætt við að á meðan staðan sé svona sé afar erfitt fyrir útgefendur krónubréfa að framlengja eða gefa út ný bréf í stað þeirra sem eru nú á gjalddaga. Það setji lóíka þrýsting á krónuna.
Mest lesið Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Sjá meira