Norskir handboltakappar handteknir í París Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. júní 2008 22:00 Bjarte Myrhol, leikmaður norska landsliðsins. Nordic Photos / AFP
Þeir Frank Löke og Bjarte Myrhol lentu í kröppum dansi í París á aðfaranótt mánudagsins er þeim var haldið næturlangt á lögreglustöð þar í borg. Norska landsliðið keppti um helgina í undankeppni Ólympíuleikanna í Peking og eftir leiki helgarinnar héldu þeir Löke og Myrhol út á lífið. Þess má geta að Norðmenn komust ekki á Ólympíuleikana en eiga leik gegn Úkraínu um helgana í undankeppni HM 2009. Þegar þeir yfirgáfu ónefnda krá um nóttina rakst annar þeirra í hliðarspegil á bifreið. Skömmu síðar mættu lögregluþjónar á svæðið og handtóku þá. Þeir eru báðir krúnurakaðir og héldu lögreglumennirnir að þeir væru nýnasistar. Þar sem þeir Myrhol og Löke töluðu ekki frönsku og lögreglumennirnir töluðu ekki ensku þurftu þeir að dúsa á stöðinni um nóttina. Þeim var þó ekki haldið í fangelsi eins og Löke sjálfur orðaði það. Það var ekki fyrr en landsliðsfélagi þeirra, Alexander Buchmann, mætti á svæðið og útskýrði málið fyrir lögregluþjónunum. Buchmann leikur með Ivry í frönsku úrvalsdeildinni og talar því góða frönsku. „Þetta var ekki skemmtileg lífsreynsla," sagði Myrhol. „Við gerðum ekkert af okkur. Ef við kynnum frönsku og værum með síðara hár hefði ekki þurft að koma til þessa." Báðir segjast þeir búast við að verða hafðir að háði og spotti landsliðsfélaga sinna. „Okkur verður ekki aftur treyst til að fara út á lífið án fylgdar," sagði Löke í léttum dúr.
Handbolti Mest lesið Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Körfubolti Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Enski boltinn Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Fótbolti Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Íslenski boltinn „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn „Frábært að fá Martin aftur“ Körfubolti „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Körfubolti Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira