Ekki bara bankamenn sem njóta fríðinda í vinnunni sev skrifar 2. október 2008 11:58
Lárus Welding fékk kannski 300 milljónir fyrir að byrja hjá Glitni og Hannes Smárason 90 milljónir fyrir að hætta hjá FL Group, en það eru ekki bara bankamenn sem ganga sílspikaðir frá samningaborðum við vinnuveitendur sína. Starfsmenn í öðrum geirum þjóðfélagsins njóta ýmissa sérkjara. Starfsmenn Dvalarheimilisins Hrafnistu fá til dæmis fimm þúsund króna styrk til heilsuræktar. Þá styrkir Hrafnista starfsmannafélagið, sem meðal annars bíður starfsfólki frítt í bíó tvisvar á ári, á árshátíð og í jólabingo, svo eitthvað sé nefnt. Og þetta er ekki allt. Starfsmenn dvalarheimilisins eru einnig, líkt og bankamennirnir, heiðraðir með ýmsum hætti fyrir það að halda tryggð við vinnustaðinn. Á heimasíðu Hrafnistu kemur fram að eftir þriggja ára starf fá starfsmenn til að mynda konfektkassa. Eftir tíu ár í starfi geta þeir farið út að borða fyrir fimmtán þúsund krónur. Eftir 25 ár er í boði "Gjugg í bæ" fyrir 35 þúsund krónur, eða gjafabréf í Kringluna eða Smáralind. Endist starfsmaður í 40 ár án þess að vera orðinn vistmaður sjálfur býðst honum utanlandsferð fyrir 110 þúsund krónur, eða vikudvöl á heilsuhælinu í Hveragerði. Vert er að taka fram að svo vitað sé fá starfsmenn Hrafnistu ekki borgað sérstaklega fyrir að byrja eða hætta hjá fyrirtækinu.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira