Viðskipti innlent

Greining Kaupþings spáir 14,3% ársverðbólgu

Greining Kaupþings spáir 1,1% hækkun á vísitölu neysluverðs í september sem þýðir 14,3% hækkun á 12 mánaða tímabili.

Áhrif útsöluloka verða til töluverðrar hækkunar auk þess sem áhrif gengisveikingar krónu síðustu mánuði halda áfram að skila sér út í verðlag.

Einnig má gera ráð fyrir tiltölulega hárri mánaðarhækkun í næstu mælingu í október, og telur greiningin að 12 mánaða verðbólga muni þá ná hámarki nálægt 15%.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×