Matur

Beggi og Pacas: Heitar mexíkóskar pönnukökur

 

 

 

Hráefni Fajitas-pönnukökur Hummus Hálfdós kjúklingabaunir 1-2 msk tahini (furuhnetusmjör) skvetta af sítrónusafa smá steinselja smá mynta
Fylltar fajitas-pönnukökur með hummus og grænmeti

Það má fylla pönnukökurnar af hjartans lyst en við fylltum þær núna með fersku salati, agúrku, tómötum, chilli og lárperu.

Endilega látið hjartað ráða ferðinni þegar þið blandið þessu saman og finnið út hvað mikið þarf af hverju.

Heitar mexíkóskar pönnukökur

Smyrjið pönnukökurnar með ostasósunni, steikið kjúklinginn og kryddið.

Setjið þá allt annað inn í kökurnar, rúllið þeim upp og smyrjið hvítlauksolíu yfir. Bakið í ofni eða á grilli í u.þ.b. 10 mínútur......Þetta er algjört nammi namm.

Hráefni pönnukökur kjúklingalundir ostasósa tómatar chilli rifinn ostur hvítlauksolía
Döðluævintýri

Látið hugann ráða hvernig þið blandið þessu saman. Það má t.d. gera kúlur eða bara eitthvað sem ykkur dettur í hug. Algjört æði, namm!

Hráefni Döðlur Skvetta af sírópi Aðeins af kókosolíu Aðeins af grófu kókosmjöli Skvetta af rjóma
Grillað grænmeti á brauði

Við ætlum að grilla eggaldin, kúrbít, papriku og chilli-pipar.

Við smyrjum brauðið með hvítlauk og grillum það aðeins. Svo setjum við spínat og þá eggaldin á brauðið og smá piparmyntusósu svo má kannski skreyta með graslauk. Það má leika sér með þetta eins og hugurinn girnist en alltaf að fylgja hjartanu!

Drykkir

Sóley

3cl smirnoff Vodka

3cl frais de bois (jarðaberjalíkjör)

9cl passion smutis

3 cl trönuberjasafi

klakar

Ástaraldindrykkur Pacasar

5cl smirnoff Vodka

Dass af sykri

Ástaraldin ca innan úr 4 stk

Piparmyntulauf

Ananas dass

Mulinn ís






Fleiri fréttir

Sjá meira


×