Landsbankinn greiðir út úr peningamarkaðssjóðum 28. október 2008 12:32
Landsbankinn hefur ákveðið að slíta peningamarkaðssjóðum sínum og greiða inn á innlánsreikninga viðkomandi einstaklinga. Uppgreiðsluhlutfallið er mismunandi eftir mynt en flestir áttu Peningabréf í íslenskum krónum. Þeir fá 68,8 prósent af bréfum sínum greidd. Þeir sem eiga Peningabréf í evrum fá 67,6 prósent greidd. Þeir sem áttu í dollurum fá 60,0 prósent greidd og þeir sem áttu í pundum fá 74,1 prósent greidd. Þá fá þeir sem áttu Peningabréf í dönskum krónum 70,1 prósent. „Greiðslur munu berast sjóðfélögum þann 29. október næstkomandi inn á innlánsreikninga í viðkomandi gjaldmiðli. Greiðslur vegna Peningabréfa ISK verða greiddar inn á hávaxta innlánsreikning í Landsbankanum þar sem innstæður eru að fullu tryggðar," segir í tilkynningu frá bankanum. Þá segir einnig: „Í framhaldi af setningu laga nr. 125/2008 um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., sem sett voru á Alþingi hinn 6. október sl. og þess umróts sem orðið hefur á fjármálamarkaði, hefur verið lokað fyrir innlausnir allra peningamarkaðssjóða síðan 6. október. Mikilvægt er að athuga að: Þessir atburðir hafa breytt rekstrar- og fjárfestingarumhverfi peningamarkaðssjóða verulega. Með lagasetningunni var forgangsröð krafna á banka breytt, þannig að innlán voru sett framar skuldabréfum á sömu fyrirtæki. Umrót eins og það sem nú hefur orðið þýðir verulegt verðfall skuldabréfa innlendra banka. Það sama á við um skuldabréf fleiri útgefenda á markaði. Skuldabréf í fjármálafyrirtækjum voru áður talin öruggur fjárfestingarkostur enda báru þau traustar einkunnir alþjóðlegra lánshæfismatsfyrirtækja er sögðu til um áreiðanleika þeirra." „Afar gott er að óvissu um Peningamarkaðssjóði Landsbankans sé nú aflétt og viljum við þakka viðskiptavinum okkar fyrir þann skilning og þolinmæði sem þeir hafa sýnt á þessum vandasama tíma," segir Stefán H. Stefánsson, framkvæmdastjóri Eignastýringarsviðs. „Samkvæmt tilmælum frá Fjármálaeftirliti, hefur sjóðunum verið slitið og sjóðfélögum verða á næstu dögum greiddar út eignir í formi innlána í hlutfalli við eign hvers og eins. Útgreiðsluhlutfallið tekur mið af því verulega verðfalli sem orðið hefur á skuldabréfum innlendra banka og annarra útgefenda á markaði. Sjóðsfélögum Peningabréfa ISK er enn fremur boðið að leggja greiðsluna inn á innlánsreikning bankans sem ber hæstu fáanleg kjör, eða 0,50% umfram efsta þrep Vaxtareiknings sem er hæsti innlánsreikningur bankans." Þá segir að á næstu dögum fái allir eigendur Peningabréfa sent bréf á sitt lögheimili þar sem fram koma útgreiðsluupphæð og upplýsingar um innlánsreikning. Viðskiptavinum er vinsamlegast bent á frekari upplýsingar á www.landsbanki.is Einnig er hægt að hafa samband við Ráðgjafa- og þjónustuver í síma 410 4000.
Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Sjá meira