Stjórn Icelandair Group gefur yfirlit um afkomu 12. október 2008 21:19 Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.
Í ljósi óvenjulegra aðstæðna á fjármálamörkuðum hefur stjórn Icelandair Group samþykkt að senda frá sér tilkynningu um óendurskoðað uppgjör og yfirlit um rekstur félagsins á fyrstu 8 mánuðum ársins 2008. Tekjur samstæðunnar eru 72 milljarðar króna, sem er 68% aukning frá sama tíma í fyrra. Hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta er 6,3 milljarðar króna, sem er 43% aukning frá sama tíma í fyrra eftir því sem fram kemur í tilkynningunni. Reksturinn hefur gengið vel á árinu „Rekstur félaga innan Icelandair Group hefur gengið vel á þessu ári. Tekjur hafa aukist verulega og afkoma batnað þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður, sem sýnir styrk og sveigjanleika félagsins. Sjóðstaða félagsins er góð og næsti stóri gjalddagi lána er í lok janúar 2009 vegna 2,5 milljarða króna skuldabréfs í eigu íslenskra aðila. Unnið er að fjármögnun vegna þess. Athygli er vakin á því að kaup félagsins á erlendum fyrirtækjum hafa ekki verið fjármögnuð með erlendum lántökum," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. „Við þær aðstæður sem nú hafa skapast á íslenskum hlutabréfamarkaði er rétt að leggja áherslu á fjölþættingu félagsins. Icelandair Group er alþjóðleg samstæða 12 dótturfélaga með rekstur um allan heim. Tekjur koma frá mörgum landsvæðum og frá ólíkum þjónustuþáttum og einungis um 25% af tekjum samstæðunnar eru í íslenskum krónum. Félagið á viðskipti í mörgum gjaldmiðlum en stærstur hluti veltunnar er í erlendri mynt; evrum, dollurum og tékkneskum krónum. Veikt gengi íslensku krónunnar hefur í heild jákvæð áhrif á gengismun félagsins. Þá hefur eldsneytisverð á heimsmarkaði farið lækkandi á síðustu vikum sem kemur vel við rekstur fyrirtækja félagsins.“
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira