Jón Ásgeir segist vera með allt sitt undir í sölunni á Baugi 12. október 2008 13:48
Jón Ásgeir Jóhannesson segir að hann sé með allt sitt undir í sölunni á Baugi Group í Bretlandi. Þetta kom fram í mjög aðgangshörðu viðtali Egils Helgasonar við Jón Ásgeir í Silfri Egils í dag. Egill hóf viðtalið með því að ræða aðkomu Philip Green að kaupunum á Baugi í Bretlandi og spurði hvort það væri bara ekki enn einn snúningurinn á því að einn auðkýfingur væri að kaupa af öðrum. Jón Ásgeir segir hvað þetta varðar að hann sé fyrst og fremst að vernda störf þeirra 55.000 Breta sem vinna í fyrirtækjum Baugs í Bretlandi. Green hafi haft samband við Baug að fyrrabragði þar sem hann hafði áhyggjur af því hvað myndi gerast ef félagið færi á hausinn. Jón Ásgeir segir að ef slíkt gerist sé Baugur í Bretlandi verðlaus og því sé betra að selja eigurnar, þótt á brunaútsölu sé, en láta það gerast. Höfuðástæðan fyrir þessum vandræðum Baugs sé milliríkjadeila sú sem kom upp milli Breta og Íslendinga og olli því að Baugur missti allt lánstraust í Bretlandi. Aðspurður um hvort hann hefði komið peningum undan segir Jón Ásgeir að svo sé ekki. "Ég er það allt mitt undir núna," segir Jón Ásgeir. Þá kom fram í viðtalinu að ef allt fer á versta veg sé Jón Ásgeir tilbúinn til að vinna á lyftara hjá Baugi á Íslandi ef út í það væri farið.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira