Green eignast Baug ekki á brunaútsölu 12. október 2008 19:00
Engar líkur eru á að Philip Green eignist Baug fyrir þær fjárhæðir sem hann býður íslenska ríkinu. Erlendir og innlendir lánardrottnar íslensku bankanna eru sagðir setja sig upp á móti því að Green fái Baug á brunaútsölu. Jón Ásgeir Jóhannesson segir það koma í ljós á næstu dögum hvort að hann missi félagið. Baugur hefur verið uppnefnt gulleggið í körfu bankanna og því eru erlendir lánadrottnar ekki sagðir getað unað við það að Philip Green eignist Baug á brunaútsölu. Heimildir fréttastofu herma að Green hafi aðeins boðið íslenska ríkinu sem nemur 10 prósentum af heildarvirði skulda Baugs. Erlendir ánadrottnar hafa sent hingað til lands stóran hóp manna á undanförnum dögum til að gæta hagsmuna sinna og til að koma í veg fyrir að verðmætin, sem íslensku bankarnir liggja á, gufi upp. Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, segist óttast það að missa fyrirtækið á næstu dögum ef ekkert yrði að gert. Hann vildi ekki tjá sig um tilboð Greens í skuldir Baugs hjá íslensku bönkunum. Finnur Sveinbjörnsson, í skilanefnd Kaupþings, staðfesti í samtali við fréttastofu að skilanefndin hefði móttekið tilboð Greens og það væri lágt. Hann vildi ekki tjá sig um það hvenær nefndin hygðist svara Green. Heimildir fréttastofu herma að framtíð Baugs og fyrirtækja þess ráðist af því hversu hratt skilanefndir Landsbankans og Kaupþings vinna. Hermt hefur verið að búðir fyrirtækja Baugs, að Iceland verlunarkeðjunni undanskilinni, verði lokaðar á morgun en Jón Ásgeir vildi ekki staðfesta það í samtali við fréttastofu. Hann sagði engin áform uppi um slíkt.
Mest lesið Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Viðskipti innlent Persónuleg áætlanagerð fyrir 2026 aldrei verið jafn auðveld og nú Atvinnulíf Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Skipta dekkin máli? Samstarf Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Sjá meira