Byr kaupir rekstur Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna 7. febrúar 2008 09:50
Kaup Byrs sparisjóðs á rekstri VSP eru liður í aukinni þjónustu við viðskiptavini sparisjóðsins. Fram til þessa hefur Byr boðið viðskiptavinum sínum verðbréfaþjónustu í gegnum dóttur- og hlutdeildarfélög sín. Nútíma fjármálaþjónusta gerir kröfur um heildstæðar lausnir til að koma til móts við þarfir viðskiptavina, þar sem kallað er eftir milliliðalausum samskiptum á sem flestum sviðum þjónustunnar. Tilgangur kaupa Byrs á rekstri VSP er viðleitni í þá átt að styrkja heildarþjónustu gagnvart viðskiptavinum. Í kjölfar kaupanna á rekstri VSP er stigið enn eitt skrefið í þá átt að efla alhliða þjónusta Byrs við viðskiptavini sína auk þess sem Byr hefur uppi áform um að styrkja enn frekar en er í dag þessa nýju starfsemi innan sinna vébanda. Til að fylgja því eftir hefur verið stofnað sérstakt svið hjá Byr er mun annast alla verðbréfaþjónustu fyrir viðskiptavini Byrs og aðra, Byr Verðbréf. Til að byrja með verður það staðsett á 1. hæð í útibúi Byrs sparisjóðs við Borgartún 18. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á þeirri þjónustu sem viðskiptavinum VSP hefur fram til þessa verið veitt. Sú starfsemi VSP sem Byr hefur fest kaup á, þ.e. eignastýring og verðbréfamiðlun, verður nú hluti af heildarstarfsemi Byrs. Byr fer með virkan eignarhlut í Rekstrarfélagi sparisjóðanna Ennfremur hefur Byr sparisjóður fengið heimild FME til að fara með ráðandi hlut í Rekstrarfélagi sparisjóðanna, en það félag hefur haft með hendi rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða fyrir VSP. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á daglegum rekstri Rekstrarfélagsins og mun það áfram veita viðskiptavinum Byrs, sjóðsfélögum og öðrum óbreytta þjónustu frá því sem var er hún var veitt í gegnum VSP. Núverandi starfsmenn Rekstrarfélagsins verða áfram starfsmenn þess og starfsemin staðsett til að byrja með hjá Byr við Garðartorg í Garðarbæ en aðskilin frá annarri starfsemi Byrs í samræmi við gildandi lög og tilmæli Fjármálaeftirlitsins. Rekstrarfélagið verður því áfram rekið sem sjálfstætt félag með eigin stjórn og framkvæmdastjóra
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira