Ísland og Svíþjóð spila um síðasta sætið á ÓL Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. júní 2008 14:29 Róbert Gunnarsson verður vonandi í ham gegn Svíum í dag. Nordic Photos / AFP
Alls hafa ellefu þjóðir tryggt sér sæti í handboltakeppninni á Ólympíuleikunum í Peking en Ísland og Svíþjóð mætast í dag í hreinum úrslitaleik um tólfta og síðasta sætið á leikunum. Um helgina fer fram undankeppni fyrir leikana í þremur riðlum en riðill Íslands fer fram í Póllandi. Heimamenn tryggðu sér í gær sæti á leikunum með því að vinna Ísland, 34-28. Pólverjar mæta Argentínumönnum í kvöld en hafa meira að segja efni á að tapa leiknum. Sterkasti riðillinn fór fram í Frakklandi en þar hafa heimamenn tryggt sér farseðilinn til Peking ásamt Spánverjum. Noregur og Túnis gerðu góða atlögu að sæti á Ólympíuleikunum en urðu á endanum að játa sig sigruð enda eiga Frakkar og Spánverjar gríðarlega sterk handboltalandslið. Það var nánast formsatriði að spila í þriðja riðlinum en þar komust heimamenn Króata og Rússar áfram á kostnað Japan og Alsír. Rússland vann í dag skyldusigur á Japan, 44-31, og gerði þar með endanlega út um keppnina í riðlinum. Rétt eins og í Póllandi skipta lokaleikir dagsins í Frakklandi og Króatíu engu máli. Frakkar mæta Norðmönnum og Króatía mætir Alsír. Úrslit þessara leikja hafa enga þýðingu. Eini leikurinn sem hefur enn einhverja þýðingu er viðureign Íslands og Svíþjóðar sem hefst klukkan 16.15 í dag og verður í beinni textalýsingu á Vísi. Svíar eru með þrjú stig í riðlinum en Ísland tvö og dugar því Svíum jafntefli í dag.Þátttökuþjóðir á ÓL: Gestgjafar: Kína Heimsmeistarar: Þýskaland Evrópumeistarar: Danmörk Sigurvegarar undankeppni Asíu: Suður-Kórea Afríkumeistarar: Egyptaland Ameríkumeistarar: Brasilía Undankeppni Ólympíuleikanna: Riðill 1: Pólland (og Svíþjóð eða Ísland) Riðill 2: Frakkland og Spánn Riðill 3: Króatía og Rússland
Handbolti Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira