Felldu niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna vegna hlutabréfakaupa 4. nóvember 2008 18:16 Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarmaður Kaupþings.
Í tilkynningu frá fyrrverandi stjórn Kaupþings banka kemur fram að stjórnin hafi ákveðið á fundi sínum þann 25.september síðastliðinn að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna af lánum til hlutabréfakaupa í Kaupþing banka. Þar segir ennfremur: „Vegna umfjöllunar fjölmiðla síðustu daga í tengslum við lánamál starfsmanna Kaupþings banka er rétt að það komi fram að engin lán hafa verið afskrifuð á stjórnendur Kaupþings banka. Á aðalfundi félagins 2004 var samþykkt að kaup- og söluréttir gætu á hverjum tíma numið allt að 9% af útgefnu hlutafé í bankanum. Með sölurétti voru starfsmenn tryggðir fyrir því að ekki reyndi á persónulega ábyrgð þeirra fyrir skuldinni. Á árinu 2005 óskaði stjórn bankans eftir því að starfsmenn féllu frá sölurétti á hlutabréfum í bankanum. Stjórnin tók jafnframt þá ákvörðun að gera ráðstafanir til þess að draga úr persónulegri áhættu starfsmanna af lántökum vegna hlutabréfakaupa í bankanum við niðurfellingu söluréttar, enda litið svo á að hagsmunir bankans og starfsmanna fælust í því að takmarka slíka áhættu. Á árinu 2005 var starfsmönnum óheimilt að draga úr áhættu sinni með því að stofna félög utan um kaup á hlutabréfum í bankanum, þar sem slíkt var að mati Fjármálaeftirlitsins talið andstætt gagnsæi á fjármálamarkaði. Þegar persónuleg ábyrgð starfsmanna var takmörkuð var tryggingarstaða bankans í undirliggjandi hlutabréfum afar sterk vegna mikillar verðhækkunar hlutabréfanna. Flestir þessara starfsmanna höfðu keypt hlutabréf í bankanum við skráningu hans og höfðu þau hækkað verulega. Stjórn Kaupþings banka ákvað á fundi sínum þann 25. september síðastliðinn að fella niður persónulegar ábyrgðir,starfsmanna af lánum til hlutabréfakaupa í Kaupþingi banka. Á þeim tíma var verðmæti hinna veðsettu hlutabréfa meira en fjárhæð eftirstöðva skulda. Vegna fallandi hlutabréfaverðs og aukins fjármagnskostnaðar var það mat stjórnar að einkum væri um tvær leiðir að velja. Annað hvort að starfsmenn seldu hlutabréf sín og greiddu þannig upp lánin eða að bankinn felldi niður það sem eftir stæði af ábyrgð starfsmanna á lánum vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Það var mat stjórnar að hefðu lykilstarfsmenn bankans hafið stórfellda sölu á hlutabréfum sínum í bankanum hefði það, í ljósi viðkvæms ástands á fjármálamörkuðum, skaðað mjög stöðu bankans. Þann 25. september, þegar ákvörðunin var tekin var staða Kaupþings banka góð og sú atburðarás sem fylgdi í kjölfarið ekki fyrirséð."
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur María Klara til Athygli Viðskipti innlent Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Samstarf Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Sjá meira