Matur

Grænmetishamborgari frá Manni lifandi

Grænmetis hamborgari fyrir fjóra:



200 gr Kjúklingabaunir

150 gr Hrísgrjón

120 gr Tofu

1 lúka Spínat

120 gr Soja ostur

1 stk ferskt rautt chilli (kjarn hreinsað)

Grænmetiskraftur eftir smekk



Hjúpur

Sólblómafræ

Sesamfræ



Öllu blandað saman í matvinsluvél og mótað í fallega borgara. Borgaranum er velt upp úr fræ blöndunni og hann síðan steiktur í kókosolíu á pönnu, einnig er hægt að baka borgarann í ofninum við ca.200°c í 10 mín.

Rauðrófusalat

2 stk rauðrófur (bakaðar í álpappír við 180c í ca. 60mín)

20 gr sólblómafræ

2 msk agave

2 msk balsamic edik

2 msk sólblómaolía

½ búnt klettasalat

Spínat eftir smekk

Koriander eftir smekk

Sjávar salt

Þegar rauðrófurnar eru full bakaðar þá eru þær kældar og skornar í teninga

Olíunni, edikinu og agave sýrópinu ber blandað saman við rauðrófuteningana og að lokum er klettasalatinu, spínatinu og koriander blandað varlega saman við.

Sólþurkað tómat pesto

50 gr sólþurkaðir tómatar

1 stk hvítlauksgeiri

1 msk balsamic edik

½ búnt basil

1 msk agave sýróp

100 ml sólblómaolía

30 gr chashew hnetur

Öllu blandað saman í matvinnsluvél.

Hummus

200 gr kjúklingabaunir (einnig hægt að fá soðnar lífrænar kjúklingabaunir í dós)

1 msk tahini (sesamsmjör)

1 msk lífrænt jógúrt

1 msk sítrónusafi

2 msk sólblómaolía

2 stk hvítlauksgeirar

½ stk ferskt rautt chilli (kjarnhreinsað)

½ búnt basil

Smá salt og pipar

Öllu blandað saman í matvinnsluvél og smakkað til með salti og pipar.

Gúrku og rauðlauks „raita"

½ stk gúrka

½ stk rauðlaukur

1 dós lífrænt jógúrt

½ búnt koriander

Smá cumin

1 msk lime safi

Gúrkan og rauðlaukurinn er skorinn fallega niður. koriander er fínt saxað og stráð yfir ásamt cumin og limesafanum, að lokum er jógúrtinu blandað samanvið og kryddað með salti og pipar.

Spelt brauð

450 gr. Gróftspelt

1 msk Vínsteins lyftiduft

2 msk olífuolía

1 tsk Salt

375 ml Vatn

Þurrefnunum er blandað saman í hrærivélaskál, olíunni og vatninu er helt varlega saman við.

Brauðið er bakað í jólakökuformi í 45 mín við 180°c






Fleiri fréttir

Sjá meira


×