Viðskipti innlent

Úrvalsvísitalan í fyrsta skipti yfir 5000 stig í mánuð

Sautján félög hækkuðu í Kauphöll Íslands í dag. Mest hækkuðu hlutabréf í Skiptum eða um 8,17%. Kaupþing hækkaði um 6,05% og Century Aluminum Company um 4,96%.

Eimskip hækkaði um 3,75% og Marel um 3,14%.

Eik Banki lækkaði mest allra félaga eða um 1,93% og Atlantic Petroleum um 1,38%. Flaga lækkaði um 1,12% og Icelandic Group um 1,06%.

Úrvalsvísitalan fór í fyrsta skipti yfir 5000 stig í mánuð en hún hækkaði um 3,65% og stendur nú í rúmum 5022 stigum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×