Viðskipti innlent

Um helmingi minna til skiptanna úr Samvinnutryggingum

Í ágúst á síðasta ári benti allt til að venjuleg fjölskylda sem tryggði hjá Samvinnutryggingum gt árin 1987 og 1988 myndi fá um 100.000 krónur í sinn hlut. Nú er þessi upphæð orðin helmingi minni eða um 50.000 kónur.

Eins og fram hefur komið í fréttum verða greiðslur úr tryggingarfélaginu í formi hlutabréfa í Gift dótturfélagi þess. Og Gift hefur ekki farið varhluta af þróuninni á hlutabréfamarkaðinum.

Síðasta sumar keypti Gift verulega stóran hlut í Exista og er sá hlutur stærsta eign þess. Frá þeim tíma hefur gengi Exista fallið um meira en helming. Þetta skýrir að mestu hvers vegna útborgunin hefur minnkað svo mikið frá því í ágúst.

Samhliða þessu hefur útborguinin dregist töluvert á langinn frá því sem upphaflega var áætlað. Kristinn Hallgrímsson hæstaréttarlögmaður, formaður skiptanefndarinnar, segir að verkið hafi reynst mun tímafrekara og flóknara en upphaflega var talið enda eiga hátt í 50.000 manns rétt á greiðslum.

Eins og staðan er í dag segir Kristinn að greiðslurnar komi til í vor en ekki sé hægt að tímasetja það nánar. Öðrum spurningum um málið vísar hann til stjórnar Gift.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×