REI verður hlutafi í Geysi Green Energy 11. mars 2008 11:21 Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy. MYND/Vilhelm
Gert er ráð fyrir að Reykjavik Energy Invest verði hluthafi í Geysi Green Energy þegar Enex og Geysir Green sameinast á næstunni. Stjórnir bæði Enex og Geysis Green hafa samþykkt þann samruna. Viðskiptablaðið greinir frá því í dag að Geysir Green og Enex hyggi á sameiningu en bæði starfa að útrás í orkumálum. Að sögn Ásgeirs Margeirssonar, forstjóra Geysi Green Energy, er samruni félaganna enn í úrvinnsluferli en reiknað er með að hann gangi í gegn á næstu einum til tveimur mánuðum. Geysir á nú þegar 73,1 prósent í Enex eftir að hafa tryggt sér um fjórðungshlut Landsvirkjunar í félaginu í haust en afganginn, um 26,5 prósent, á Reykjavik Energy Invest, dótturfélag Orkuveitunnar. „Hugmyndin er sú að REI fái hlutabréf í Geysi Green í staðinn fyrir hlut sinn í Enex," segir Ásgeir. Hann bendir á að þar sem Geysir Green sé mun stærra félag í Enex nemi hlutur REI í hinu sameinaða félagi nokkrum prósentum. Ásgeir segir málið á beinni braut og segir aðspurður að fulltrúi REI í stjórn Enex, Guðmundur Þóroddsson, hafi samþykkt að vinna að sameiningunni. Eins og kunnugt er var samruni Geysis Green og REI blásinn af í haust, meðal annars vegna umdeildra kaupréttarsamninga og hins svokallaða 20 ára samnings. Ásgeir segir að REI og Geysir Green muni nú ekki rugla saman reytum að öðru leyti en því að REI verður hluthafi í Geysi Green. Viðskiptablaðið greindi einni frá því í dag að Ólafur Jóhann Ólafsson og bandaríski fjárfestingarbankinn Goldman Sachs væru nú að leggja lokahönd á kaup á 8,5 prósenta hlut í Geysi Green Energy. Ásgeir bendir á að það hafi staðið til frá því í haust að þessir aðilar kæmu að félaginu en málið sé enn í vinnslu. „Þetta er þó ekki búið fyrr en þetta er búið," ítrekar Ásgeir og bendir á að miklar breytingar hafi orðið í kringum Geysi á síðustu mánuðum. FL Group hafi selt sinn hlut í félaginu og þá hafi málefni REI og Geysis Green einnig haft áhrif á starfið. Aðspurður segist Ásgeir vona að gengið hafi verið frá kaupum Ólafs Jóhanns og Goldman Sachs fyrir aðalfund Geysis sem verður í kringum næstu mánaðamót.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Neytendur Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira