Gæti spilað á EM ári eftir heilaskurðaðgerð 12. janúar 2008 11:13 Jens Tiedtke, leikmaður þýska landsliðsins. Nordic Photos / Bongarts
Árið hjá línumanninnum þýska Jens Tiedtke hefur verið viðburðarríkt. Fyrir ári gekkst hann undir heilaskurðaðgerð en svo gæti farið að hann spili með þýska landsliðinu á EM í næstu viku. Í október árið 2006 fékk Tiedtke þær slæmu fréttir að hann væri með heilaæxli. Ljóst var að hann þurfti að gangast undir erfiða aðgerð. Í stuttu máli sagt gekk aðgerðin fullkomnlega og fékk hann þær góðu fréttir nokkrum mánuðum síðar að hann mætti spila handbolta á nýjan leik. Það var svo í apríl í fyrra sem hann spilaði í fyrsta sinn á nýjan leik með félagsliði sínu, Grosswallstadt. Áhorfendur hylltu hann vel og lengi er hann tók sín fyrstu skref á vellinum. Vegna veikindanna missti Tiedke af heimsmeistarakeppninni í heimalandi sínu en vegna góðrar frammistöðu með liði sínu í haust ákvað Heiner Brand landsliðsþjálfari að velja hann í EM-hópinn sinn. Það er þó ekki enn fullvíst hvort hann verði með á EM þar sem Brand þarf að skilja eftir einn línumann af þeim þrem sem eru í hópnum í dag. „Árið 2008 verður frábært þar sem bæði EM og Ólympíuleikarnir eru á dagskrá. Ég vona að ég geti hjálpað þýska liðinu eitthvað. Ég vil spila eins vel og ég get til að gera ákvörðun Heiner eins erfiða og mögulegt er." Tiedtke vill lítið ræða um fortíðina en sagði þó að stórmótin á árinu hafi hjálpað sér í bataferlinu. „Ég vonaðist alltaf til að fá mitt tækifæri á nýjan leik. Það var það sem dreif mig mest áfram." „Ef ég fengi að spila í Noregi væri það frábært því enginn bjóst við því að það yrði mögulegt. Ég er ánægður með að Heiner Brand gaf mér tækifæri til að sýna hvað í mér býr og verðum við núna að bíða og sjá hvað gerist." Þjóðverjar mæta Dönum um helgina og á mánudaginn mun svo Brand velja endanlegan EM-hópinn sinn.
Mest lesið Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Kallaður fyrir þingnefnd vegna tengslanna við Trump Fótbolti „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Finnst illa að Argentínu vegið: „Enginn fótur fyrir þessu hatri“ Fótbolti Mbappé sár eftir HM Fótbolti Hræðist ekki sorgarsögu Íslendinga í Króatíu: „Við þurfum bara að skrifa betri sögu“ Fótbolti Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira