Formúla 1

Baugur sagt hafa keypt þriðjung í keppnisliði Williams

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nico Rosberg í skyrtu merktri Williams-liðinu og Baugi er hann kom til landsins í fyrra.
Nico Rosberg í skyrtu merktri Williams-liðinu og Baugi er hann kom til landsins í fyrra. Mynd/Anton

Á vefsíðu International Herald Tribune heldur Brad Spurgeon blaðamaður því fram á bloggi sínu að keppnislið Williams í Formúlunni hafi selt þriðjungshlut í liðinu til Baugs.

Baugur hefur styrkt Williams í nokkur ár. Spurgeon segist hafa góðar heimildir fyrir þessu úr innstu röðum liðsins. Orðrómur þess efnis hefur farið um netið á síðustu dögum og þetta er ekki í fysta sinn sem þessu hefur verið haldið fram.

Williams hefur ekki fagnað sigri í Formúlunni síðan að Jaques Villeneuve varð heimsmeistari er hann ók fyrir liðið árið 1997.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×