Vegagerðin er ekki í eltingarleik G. Pétur Matthíasson. skrifar 9. apríl 2008 06:00 Vegagerðin hundeltir engan og síst af öllu flutningabílstjóra. Vegagerðin sinnir hins vegar lögbundnu hlutverki sínu um að hafa eftirlit með því að aksturs- og hvíldartími sé virtur. Í mótmælum flutningabílstjóra hafa komið fram sjónarmið hjá sumum sem ekki eiga við nein rök að styðjast. Hvað sem líður háu eldsneytisverði er betra að hafa staðreyndir á hreinu. Bílstjórar eru ekki sektaðir nema þeir hafi brotið reglurnar og það gerir mikill minnihluti þeirra. Flestum hefur gengið vel að fara eftir reglunum sl. ár. Reglur þær um aksturs- og hvíldartíma sem nú eru gagnrýndar hafa verið í gildi síðan árið 2000, þeim var lítillega breytt árið 2006. Samkvæmt þeim gildir sú meginregla flestra launamanna að þeir eiga rétt á 11 tíma hvíld á sólarhring en þó mega ökumenn tvisvar í viku stytta þann hvíldartíma niður í 9 tíma. Varðandi aksturstímann sérstaklega þá skulu menn á hverjum samfelldum 4,5 tímum í akstri taka sér 45 mínútna hvíld. Henni má skipta í þrennt og taka hvenær sem er á þessum 4,5 tímum. Menn mega í allt keyra í níu tíma á sólarhring og þá er ekki verið að tala um þann tíma sem það tekur að lesta bílinn. Einungis þann tíma sem bílstjórinn er að keyra bílinn. Tvo daga í viku má lengja þennan tíma í 10 tíma. Það þarf enginn að stöðva á Holtavörðuheiðinni og horfa niður á Brú. Fari maður úr Reykjavík og norður, telst einungis sá tími þegar ekið er. Fullnægja má hvíldinni með 15 mínútna stoppi í Borgarnesi og hálftíma í nefndri Brú, svo dæmi sé tekið. Þá hefst annað 4,5 tíma tímabil og því varla snúið að aka áfram hvort heldur er á Ísafjörð eða Akureyri. Vegagerðin hefur ekki farið eftir stífasta bókstaf reglnanna enda felst ákveðið svigrúm í sektarreglugerð samgönguráðherra. Á vegum landsins er fjöldi staða þar sem hægt er að stöðva bílinn og hvílast. Þeir sem hafa atvinnu af því að keyra um vegina hljóta að þekkja til þessara staða. Þótt ekki séu sjoppur á þeim öllum eru aðrar leiðir færar. Eflaust má bæta þjónustu á áningarstöðum verulega en það er önnur og stærri spurning sem Vegagerðin svarar ekki því í það þyrfti þá að leggja mikið fé. Það er Alþingis að taka ákvörðun um það. Rétt er að hafa í huga að reglurnar um hvíldar- og aksturstíma eru settar til að auka umferðaröryggi í flutningum, til að tryggja jafna samkeppnisstöðu fyrirtækja í þessum rekstri og koma á samræmdri vinnulöggjöf ökumanna. Höfundur er upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Sjá meira
Vegagerðin hundeltir engan og síst af öllu flutningabílstjóra. Vegagerðin sinnir hins vegar lögbundnu hlutverki sínu um að hafa eftirlit með því að aksturs- og hvíldartími sé virtur. Í mótmælum flutningabílstjóra hafa komið fram sjónarmið hjá sumum sem ekki eiga við nein rök að styðjast. Hvað sem líður háu eldsneytisverði er betra að hafa staðreyndir á hreinu. Bílstjórar eru ekki sektaðir nema þeir hafi brotið reglurnar og það gerir mikill minnihluti þeirra. Flestum hefur gengið vel að fara eftir reglunum sl. ár. Reglur þær um aksturs- og hvíldartíma sem nú eru gagnrýndar hafa verið í gildi síðan árið 2000, þeim var lítillega breytt árið 2006. Samkvæmt þeim gildir sú meginregla flestra launamanna að þeir eiga rétt á 11 tíma hvíld á sólarhring en þó mega ökumenn tvisvar í viku stytta þann hvíldartíma niður í 9 tíma. Varðandi aksturstímann sérstaklega þá skulu menn á hverjum samfelldum 4,5 tímum í akstri taka sér 45 mínútna hvíld. Henni má skipta í þrennt og taka hvenær sem er á þessum 4,5 tímum. Menn mega í allt keyra í níu tíma á sólarhring og þá er ekki verið að tala um þann tíma sem það tekur að lesta bílinn. Einungis þann tíma sem bílstjórinn er að keyra bílinn. Tvo daga í viku má lengja þennan tíma í 10 tíma. Það þarf enginn að stöðva á Holtavörðuheiðinni og horfa niður á Brú. Fari maður úr Reykjavík og norður, telst einungis sá tími þegar ekið er. Fullnægja má hvíldinni með 15 mínútna stoppi í Borgarnesi og hálftíma í nefndri Brú, svo dæmi sé tekið. Þá hefst annað 4,5 tíma tímabil og því varla snúið að aka áfram hvort heldur er á Ísafjörð eða Akureyri. Vegagerðin hefur ekki farið eftir stífasta bókstaf reglnanna enda felst ákveðið svigrúm í sektarreglugerð samgönguráðherra. Á vegum landsins er fjöldi staða þar sem hægt er að stöðva bílinn og hvílast. Þeir sem hafa atvinnu af því að keyra um vegina hljóta að þekkja til þessara staða. Þótt ekki séu sjoppur á þeim öllum eru aðrar leiðir færar. Eflaust má bæta þjónustu á áningarstöðum verulega en það er önnur og stærri spurning sem Vegagerðin svarar ekki því í það þyrfti þá að leggja mikið fé. Það er Alþingis að taka ákvörðun um það. Rétt er að hafa í huga að reglurnar um hvíldar- og aksturstíma eru settar til að auka umferðaröryggi í flutningum, til að tryggja jafna samkeppnisstöðu fyrirtækja í þessum rekstri og koma á samræmdri vinnulöggjöf ökumanna. Höfundur er upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun