Guðbjörg seldi Glitnishlut korteri fyrir þjóðnýtingu 5. október 2008 09:51
Athafnakonan Guðbjörg Matthíasdóttir seldi lungann úr 1,71% hluti sínum í Glitni á fimmtudaginn 25. eða föstudaginn 26. september korteri áður en bankinn var þjóðnýttur. Hún var sú eina af tuttugu stærstu hluthöfum bankans sem seldi hlut sinn í vikunni fyrir þjóðnýtingu. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, sem hefur verið helsti ráðgjafi Guðbjargar í viðskiptum á undanförnum árum, sagði í samtali við Vísi að tímasetningin væri hrein tilviljun. "Það var gerður söluréttarsamningur um þennan hlut sem gilti í eitt ár þegar Glitnir keypti hlut hennar í TM í september í fyrra. Ég held að sölurétturinn hafi verið virkur í tvo daga þegar Guðbjörg nýtti sér hann á fimmtudag eða föstudag í síðustu viku," segir Gunnlaugur Sævar og bætir við að engu máli hafi skipt hvenær Guðbjörg hefði selt hlutinn vegna samningsins. Hann vill þó ekki gefa upp á hvaða gengi hluturinn var seldur. Guðbjörg fékk hlutinn í Glitni á genginu 28,45 þegar bankinn keypti 39% hlut hennar og nokkurra annarra í Tryggingamiðstöðinni 5. september á síðasta ári. Miðað við hluthafaskrá Glitnis má sjá að Guðbjörg kemur fyrst inn í hluthafalistann vikuna 24. til 30. september í fyrra. Róbert Wessman var ekki jafn heppinn og Guðbjörg því hann keypti 2,5% hlut í Glitni fyrir fimm milljarða á svipuðum tíma og Guðbjörg seldi sinn hlut. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson er náinn vinur Davíðs Oddssonar Seðlabankastjóra og var til að mynda veislustjóri í fimmtugsafmæli hans. Sonur Guðbjargar, Einar Sigurðsson, vinnur í Glitni.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira