Fullyrðingar um andlát Icebank stórlega ýktar 25. september 2008 14:44 Agnar Hansson. „
Ég held ég geti fullyrt að sögur af andláti mínu eru stórlega ýktar," segir Agnar Hansson, forstjóri Icebank, um orðróm þess efnis að bankinn sé gjaldþrota.Agnar viðurkennir í samtali við Vísi að árið hafi reynst erfitt og að bankinn hafi þurft að afskrifa um fjóra milljarð og þá hafi félagið tapað á lækkun hlutabréfa í Exista. Samkvæmt hálfsársuppgjöri Icebank nam tap hans á fyrri helmingi ársins 2,8 milljörðum króna en Agnar bendir á að eigið fé bankans sé um ellefu milljarðar.Aðspurður hvort forsvarsmenn Icebank hafi átt í þreifingum við önnur fjármálafyrirtæki vegna versnandi stöðu á fjármálamarkaði segir Agnar að hann hafi látið hafa það eftir sér að hans draumsýn væri að ná sparisjóðakerfinu í einn banka sem yrði fjórða stoðin á bankamarkaði. Ljóst er að það verður ekki því útlit er fyrir að SPRON sameinist Kaupþingi og Byr Glitni.Icebank hefur lagt áherslu á heildsölu- og fjárfestingarbankastarfsemi gagnvart sparisjóðum landsins og eiga sparisjóðirnir í landinu ríflega helmingshlut í Icebank. Afganginn eiga helstu stjórnendur og ýmsir aðrir fjárfestar.Icebank er stærsti lánadrottinn sparisjóðanna og segir Agnar að staða þeirra hafi breyst mjög á árinu. Jafnvægi hafi lengi verið á milli eigna og skulda þeirra en nú nemi skuldir sparisjóðanna við Icebank um 30 milljörðum króna. Mestur hluti skuldanna sé vegna erlendra lána þeirra.Icebank hafi lokið endurfjármögnun í vor ekkert lán sé á gjalddaga fyrr en á sama tíma að ári. Þá segir Agnar að bankinn hafi þroskast og farið að þjónusta fleiri aðila og aukið þannig tekjur sínar. Því kannast hann ekki við að bankinn sé kominn í þrot.
Mest lesið Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur Tilfallandi neftóbaksskortur veldur sjálfta Viðskipti innlent 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Viðskipti innlent Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Viðskipti innlent Lausnamiðuð ferilskrá og að þora Atvinnulíf Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tilfallandi neftóbaksskortur veldur sjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Sjá meira