Hreinn Loftsson kaupir Birtíng 4. nóvember 2008 21:01 Hreinn Loftsson stjórnarmaður í Baugi og nýr eigandi Útgáfufélagsins Birtíngs.
Austursel ehf sem er alfarið í eigu Hreins Loftssonar stjórnarmanns í Baugi, hefur keypt útgáfufélagið Birtíng ehf. Aðaleigandi Birtíngs fyrir þessi viðskipti voru Stoðir Invest, sem er í meirihluta eigu Gaums félags Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Útgáfufélagið Birtíngur gefur út Dagblaðið DV, fréttavefinn dv.is auk 11 tímarita. Meðal tímarita félagsins má nefna Séð og heyrt, Hús & híbýli og Mannlíf. Að sögn Hreins hefur Austursel ehf. átt á bilinu 5-10% hlut í Birtíngi en hann hefur verið stjórnarformaður félagsins. Aðspurður hversu mikið hann greiðir fyrir viðskiptin vill Hreinn ekki gefa það upp. „En þetta eru raunveruleg viðskipti." Hreinn segist gera sér grein fyrir því að nú séu óvissutímar í þessum bransa en hann hafi alla tíð haft mikinn áhuga á fjölmiðlum og meðal annars starfað við þá. „Og ég hef þá trú að þegar dagur rís á nýjan leik verði þetta sterkt félag og það eru uppi ýmis merki þess. DV hefur til dæmis verið að sækja í sig veðrið og við sjáum aukningu í lausasölu þó það hafi verið erfitt á auglýsingamarkaði," segir Hreinn. „Það verða að vera til frjálsir fjölmiðlar hér á landi og ég hef fullan hug að á sjá til þess að svo verði." Vandséð er að sjá hvernig eignatengsl Birtíngs ehf og Baugs verða rofin með þessum viðskiptum því Hreinn er ekki bara stjórnarmaður í Baugi, heldur á annað félag í hans eigu, Bagu, einnig 10% hlut í Baugi. Samkvæmt fréttavefnum dv.is verður nánar fjallað um kaupin í DV á morgun.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira