Viðskipti innlent

Búast má við eldsneytishækkunum í dag

Búast má við að olíufélögin hækki verð á bensíni og olíu í dag, ef verðlagning þeirra lýtur enn tilteknum sveiflum á milli ýmissa hagtalna.

Gengi krónunnar lækkaði í gær, og þar með hækkaði gengi dollars, en olíuviðskiptin eru gerð í dollurum. Hráolíuverð hækkaði líka á heimsmarkaði í gær, reyndar meir en nokkru sinni fyrr á einum degi. Allar þessar sveiflur hníga að bensínhækkun hér á landi, en nú rétt fyrir fréttir lá ekki fyrir hvort félögin væru byrjuð að hækka.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×