Nauðsynlegt að bjarga Skífunni 1. nóvember 2008 19:23 Ari Edwald, forstjóri 365, sem rekur Senu.
Það yrði gífurlegt áfall fyrir Senu ef að Skífan færi í gjaldþrot og aðgengi Senu að geisladiskamarkaðnum myndi stöðvast. Þetta er ástæða þess að Sena ákvað að kaupa Skífuna af Árdegi. Samningar þess efnis voru undirritaðir í gær. Ari Edwald, forstjóri 365 sem rekur Senu, segir að í flestum greinum sé Sena birgir fyrir marga smásöluaðila, en í tónlistinni sé því öðruvísi farið. Þar hafi Skífan 70% af allri sölu á tónlistardiskum frá Senu. „Þannig að það er gífurlegt áfall fyrir Senu ef Skífan og Árdegi eru að fara í gjaldþrot og myndi stöðva aðgang Senu að markaðnum. Að maður tali ekki um núna í upphafi jólavertíðar," segir Ari. Ari segir því að það sé af brýnni nauðsyn sem Sena stígi þarna inn til að taka yfir þennan rekstur. Annars yrði sala á geisladiskum með tónlist í algjöru uppnámi. „Með þessum kaupum þá er því afstýrt og það eru allar líkur á því að verslunarrekstur Skífunnar verði ekki fyrir neinu hnjaski," segir Ari. Hann segist trúa þvi að Sena geti sett meiri kraft í þennan verslunarrekstur en verið hafi að undanförnu. Í tilkynningu sem Árdegi sendi frá sér í dag kemur fram að stefnt sé að sölu á BT verslununum. Ari segir að ekki standi til að Sena kaupi þann rekstur. BT verslanirnar hafa verið lokaðar um helgina og í kvöldfréttum RÚV kom fram að óvíst væri hvort þær myndu opna eftir helgi. Starfsmenn hafa ekki fengið greidd laun þessi mánaðamót.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Sjá meira