Óvissa um vaxtastig og frekari stýrivaxtahækkanir framundan 7. nóvember 2008 12:00
Mikil óvissa er nú um skammtímavaxtastig hérlendis á næstunni í kjölfar áherslubreytinga Seðlabankans, og er hætt við að vaxtamyndun á skuldabréfamarkaði verði óskilvirkari og sveiflukenndari fyrir vikið á næstunni. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þá eru verulegar líkur á því að stýrivextir kunni að hækka frekar á næstu vikum eða mánuðum til að stemma stigu við öru útflæði gjaldeyris í kjölfar þess að krónunni verður ýtt á flot að nýju. Vonir standa þó til að slíkt hávaxtatímabil verði skammvinnt og að stýrivextir verði orðnir verulega lægri en nú er raunin þegar kemur fram á næsta ár. Seðlabankinn tilkynnti í Peningamálum sem út komu í gær að áherslubreytingar hefðu orðið í peningastefnu bankans. Þótt verðbólgumarkmið Seðlabankans sé enn formlega í gildi mun bankinn einbeita sér að því að ná stöðugleika í gengismálum og í kjölfarið auka styrk krónu á næstunni. Í þessu felst að stjórntækjum Seðlabanka, m.a. stýrivöxtum og inngripum á gjaldeyrismarkaði, verður fyrst og fremst beitt í þessu skyni. Bankinn leggur einnig áherslu á að leitast við að halda raunvaxtastigi jákvæðu á næstunni. Miðað við verðbólguspá bankans, þar sem gert er ráð fyrir verulegri hækkun neysluverðs og að ársverðbólga nái hámarki í tæplega 23% á fyrsta fjórðungi næsta árs, felst í þessu að stýrivextir muni enn hækka talsvert á næstu vikum. Bankinn hefur einnig í þessu sambandi hætt birtingu þess vaxtaferils sem tryggja á framgang verðbólgumarkmiðs, enda má segja að vaxtastefnan hafi færst frá því að leggja áherslu á væntingamyndun á vaxtamarkaði til þess að vera viðbragðsstefna við gengisþróun. Gengisþróun krónu verður því ráðandi þáttur í vaxtaþróun næstu mánaða og má búast við að skammtímavextir á markaði muni sveiflast að verulegu leyti með krónunni vegna væntinga manna um viðbrögð Seðlabanka við gengissveiflum. Það flækir einnig myndina að þótt stýrivextir kunni að lækka myndarlega eftir að gengi krónu hefur verið beislað mun framboð af ríkistryggðum skuldabréfum til skemmri og lengri tíma stóraukast á næstu misserum vegna mikillar fjármögnunarþarfar ríkissjóðs.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira