Þýskir bankar eiga þriðjung af erlendum skuldum bankanna 23. október 2008 11:07
Þýskir bankar voru lánardrottnar að baki tæplega þriðjungi af erlendum skuldum íslenskra banka og annarra hérlendra fyrirtækja um mitt ár. Alls námu kröfur þeirra á hendur íslenskum skuldurum ríflega 21 milljörðum dollara, sem samsvarar rétt um 2.500 milljörðum kr. miðað við skráð gengi Seðlabanka í gær. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar sem að ætla megi að þýska fjármálakerfið verði fyrir umtalsverðum skaða í kjölfarið á þroti íslensku bankanna. Alþjóða greiðslubankinn (BIS) í Sviss birti í morgun tölur um skuldir og kröfur innan hins alþjóðlega fjármálakerfis. Kemur þar fram að erlendar kröfur á íslensk fyrirtæki námu alls ríflega 75 milljörðum dollara um mitt ár eða um 8.000 milljörðum kr. Alls námu kröfur evrópskra banka á hérlend fyrirtæki í júnílok 42,6 milljörðum dollara. Þetta samsvarar ríflega 56% af öllum erlendum skuldum íslenskra fyrirtækja á þeim tíma. Greining Glitnis segir að í þessu ljósi, og með hliðsjón af því hversu víðtækar björgunaraðgerðir ríki Evrópu hafa ráðist í til að verja fjármálakerfi sín falli, má velta fyrir sér hvort ekki hafi verið sparaður aurinn og krónunni hent þegar evrópskir seðlabankar ákváðu að veita Seðlabanka Íslands ekki lánafyrirgreiðslu til þess að styðja við bakið á hérlendu fjármálakerfi. Í öllu falli virðast þær upphæðir sem hér um ræðir, og líklega munu tapast að miklu leyti, talsvert stærri en þær fjárhæðir sem rætt var um þegar Seðlabankinn leitaði á náðir systurbanka sinna í Evrópu varðandi aðstoð fyrr á árinu. Við það bætast svo þau neikvæðu áhrif sem fréttir af bankaáfallinu á Íslandi hafa haft á alþjóðlega fjármálamarkaði, einnig þá sem ekki bera mikinn beinan skaða af áfallinu hér á landi.
Mest lesið Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Sjá meira