Hells Angels-plága í bænum sem Hrafnhildur var myrt 24. september 2008 20:45 MYND/AFP
Félagar í alþjóðlegu glæpasamtökunum Hells Angels hafa komið sér fyrir í smábænum Cabarete í Dóminíska lýðveldinu. Í fyrradag fannst Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir myrt á Extreme hótelinu á Cabarete ströndinni þar sem hún bjó og starfaði. Unnusti Hrafnhildar er í haldi lögreglu í tengslum við málið sem tengist ekki glæpasamtökunum. Um er að ræða liðsmenn úr kanadískum samtökum Hells Angels en fjölmargir félagar samtakanna hafa sést á götum bæjarins, veitingarstöðum og á ströndinni en einungis 15.000 manns búa í Cabarete. Frá þessu var meðal annars greint í kanadíska fjölmiðlinum Sun Media fyrr á árinu. Í Cabarete hefur gata verið nefnd í höfuðið á Hells Angels. Þá hefur einnig sést til liðsmanna glæpasamtakanna í ferðamannabæjunum Sosua og Puerto Plata í nágrenni Cabarete. Hells Angels hafa skotið rótum víðsvegar um heiminn frá því að þau voru stofnuð 1948 í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Samtökin hafa verið fyrirferðamikil á Norðurlöndunum og til að mynda hafa dönsk yfirvöld þurft að hafa umtalsverð afskipti af félögum Hells Angels seinustu daga. Hells Angels hafa reynt að koma sér fyrir á Íslandi en við komu til landsins hefur meðlimum þeirra verið snúið við á Keflavíkurflugvelli og þeir sendir með næstu flugvél til baka.
Dóminíska lýðveldið Íslensk kona myrt í Dóminíska lýðveldinu Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent Hítará hefur fundið sér nýjan farveg Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Veiðileyfasali fékk engar bætur dæmdar fyrir þjófnað í Kjarrá Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Sjá meira