Ekki ákveðið hvort Björgólfsfeðgar breyti láninu í hlutafé í Eimskip 11. september 2008 15:53 Björgólfur Guðmundsson.
Yfirlýsing þeirra Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar um að þeir fari fyrir hópi fjárfesta sem muni veita Eimskipi víkjandi lán upp á um 26 milljarða hefur vakið athygli. Spurningar hafa vaknað um hvert framhaldið verði og hvort Björgólfsfeðgar muni á endanum breyta láninu í hlutafé í félaginu. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga, segir að ekkert hafi verið ákveðið í þeim efnum. Til þess þurfi meðal annars samþykki félagsins samkvæmt reglum þess. „Staðan er einfaldlega sú að ekkert hefur verið ákveðið umfram það sem kemur fram í tilkynningunni sem send var Kauphöll á þriðjudag," segir Ásgeir í samtali við Vísi. „Það er ekki þannig að menn séu að reyna að fela eitthvað eða nokkuð slíkt, heldur var talið mikilvægt að bregðast við markaðsaðstæðum á þriðjudag og það var gert." Að sögn Ásgeirs er í raun um samkomulag að ræða sem sé meira í ætt við viljayfirlýsingu. „Það er ekki búið að semja um hlutina með skýrum hætti. Það liggur þó fyrir að verið er að tala um lán sem hvílir á félaginu þar sem þeir feðgar eru ábyrgir. Þetta er víkjandi lán að því leytinu til að það kemur aftast í röð lána og krafna, en er þó fyrir ofan rétt hluthafa," segir Ásgeir og bætir því við að jafnframt sé lánið þess eðlis að „það væri hægt að breyta því í hlutafé." Ekkert mun þó vera ákveðið í þeim efnum að sögn Ásgeirs. Ásgeir segist vonast til þess að málið skýrist betur á næstu dögum. „Markaðurinn kallar eftir því að frá þessu verði gengið en á meðan ekki er búið að því er í raunnini ekki um neitt að tala." Þegar Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, er spurður að því hvort tilkynningin sem send var á þriðjudag fullnægði kröfum Kauphallarinnar sagði hann það á hreinu. „Við teljum að þessi tilkynning fullnægi þeirri upplýsingagjöf sem þarf um þetta mál." Að öðru leyti vísar Þórður til Eimskips og segir að það sé fyrirtækisins að upplýsa nánar um málið. „Það er þeirra að upplýsa um það hvenær og með hvaða hætti þeir greina fyrir hugsanlegum breytingum í framtíðinni þegar, og ef þær, verða ákveðnar." Þeir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips og Sindri Sindrason, stjórnarformaður félagsins vilja ekki tjá sig um málið að svo stöddu, að sögn Halldórs Kristmannssonar, forstöðumanns samskiptasviðs fyrirtækisins.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Sjá meira