Microsoft flytur inn ráðstefnu til landsins 5. nóvember 2008 14:31
Farandráðstefna um vefhönnun og vefhýsingu mun hefja Evróputúr sinn á Íslandi þann 18. nóvember næstkomandi. Ráðstefnan kemur hingað til lands á vegum Microsoft Íslandi og er hluti af verkefni sem fyrirtækið hefur sett af stað til að byggja upp og viðhalda þekkingu í upplýsingatækni hér á landi í erfiðu árferði. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Í tilkynningu frá Microsoft Íslandi kemur fram að fyrirtækið hefur skipulagt hópferðir íslenskra þekkingarstarfsmanna á ráðstefnur og námskeið á vegum Microsoft erlendis og hefur verið mikil þátttaka síðustu ár. Ráðstefnurnar eru mikilvægar svo þeir sem starfa við upplýsingatækni geti haldið þekkingu sinni við og tileinkað sér nýjungar eins fljótt og hægt er. Í núverandi ástandi í efnahagslífinu hefur aðsókn að ráðstefnum erlendis hins vegar hrunið og við því hyggst Microsoft Íslandi bregðast. „Það er skiljanlegt að fyrirtæki leiti allra leiða til að minnka kostnað, en til lengri tíma litið er það afar óheppilegt fyrir íslensk upplýsingatæknifyrirtæki að starfsmenn geti ekki sótt sér þekkingu út fyrir landsteinana," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi. „Þvert á móti verðum við að nýta upplýsingatækni og hugvit íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja til að koma okkur upp úr efnahagslægðinni næstu árin. Því sjáum við fyrir okkur að ef Íslendingar komast ekki á ráðstefnur erlendis verðum við að flytja þær inn."
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira