Segir vaxtadag Seðlabankans á morgun vera óþarfan 5. nóvember 2008 11:19
Greining Glitnis segir að vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans á morgun sé í raun óþarfur þar sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) hefur í samvinnu við ríkisstjórnina tekið við stjórnun peningamála, a.m.k tímabundið. Í umfjöllun um málið í Morgunkorni greiningarinnar segir að komin sé upp nokkuð áhugaverð staða í peningastjórnun hér á landi.. Í takt við viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og IMF voru stýrivextir þannig hækkaðir úr 12% í 18% í síðustu viku. Vaxtahækkunina átti að framkvæma áður en framkvæmdastjórn IMF tæki ákvörðun um hugsanlegt lán til Íslands og legði blessun sína yfir aðgerðaáætlun ríkisstjórnar og sjóðsins. Reiknað var með þeirri ákvörðun á þriðjudaginn en nú er ljóst að framkvæmdastjórn IMF mun ekki taka málið fyrir fyrr en á föstudaginn. „Á morgun verður hins vegar vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans sem var fyrir löngu ákveðinn og nú má spyrja sig hvaða merkingu dagurinn hefur þegar ljóst er að það er ekki í höndum bankans að ákveða vexti," segir í Morgunkorninu Ljóst er að bankinn vill ekki setja hugsanlega lánveitingu IMF í uppnám og mun því halda vöxtum óbreyttum. Engin óvissa virðist um það og vaxtaákvörðunardagurinn að því leytinu til óþarfur. Það sem verður hins vegar áhugavert er að heyra umræðu bankastjóra Seðlabankans um stöðu bankans í þessu nýja umhverfi. Greining segir að einnig verði áhugavert að sjá efnahagsspá Seðlabankans sem verður birt á morgun ásamt þeim ferli stýrivaxta sem talinn er að muni stuðla að því að ná verðbólgumarkmiði bankans á næstu misserum. Mun þar eflaust felast í forsendum eitthvað af þeim aðgerðum sem ráðast á í hér á næstu misserum til úrlausnar banka- og gjaldeyriskreppunni. Kann spáin þannig að gefa einhverjar vísbendingar um innihald ofangreindrar viljayfirlýsingar IMF og ríkisstjórnarinnar sem annars er trúnaðarmál þar til framkvæmdastjórn sjóðsins hefur samþykkt lánveitinguna.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira