Viðskipti innlent

Bandaríkjamenn töldu ekki ástæðu til að semja við SÍ

Seðlabanki Bandaríkjanna taldi ekki ástæðu til að gera gjaldmiðlaskiptasamning við Seðlabanka Íslands. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn Vísis til bankastjórnar seðlabankans.

Í svari SÍ við spurningunni um hvort verið væri að vinna að samningi svipuðum þeim sem hin norrænu ríkin fengu segir: „Eins og komið hefur fram í fréttum hefur Seðlabanki Bandaríkjanna gert tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamninga við fjóra seðlabanka til þess að leysa úr bráðaþörf fyrir Bandaríkjadali sem upp kom í viðkomandi löndum.

Samningar þessir eru annars eðlis en þeir sem Seðlabanki Íslands gerði við þrjá norræna seðlabanka í maí sl.

Seðlabanki Íslands hefur átt viðræður við Seðlabanka Bandaríkjanna á undanförnum vikum. Ekki voru taldar ástæður eða efni til þess að gera á þessu stigi saming við Seðlabanka Íslands. Alls ekki væri þó útilokað að slíkur samningur yrði gerður síðar ef aðstæður gefa tilefni til."
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×