Toppmaður í Carnegie segir þetta búið spil fyrir íslensku bankana 3. október 2008 16:01
Herleif Håvik forstöðumaður vaxta-og lánadeildar Carnegie bankans segir í samtali við viðskiptavefinn E24.no að þetta sé búið spil fyrir íslensku bankana. Vísar hann þar í skuldatryggingarálagið sem rokið hefur upp í 6.000 punkta í dag hjá Kaupþingi og 5.500 hjá Landsbankanum. "Þetta lítur mjög alvarlega út og í raun er markaðurinn að segja að þeir séu búnir að vera," segir Håvik sem þar að auki bendir á að þrátt fyrir yfirtöku íslenska ríkisins á Glitni hafi ríkið ekki sett fram neinar tryggingar fyrir skuldum Glitnis. Håvik segir að íslenska ríkið sé ekki nógu öflugt til að bjarga bönkunum á Íslandi. Bara efnahagsreikningurinn hjá Glitni sé um 2,5 föld landsframleiðsla Íslands. Håvik segir að tvær leiðir séu til í stöðunni. Annarsvegar verði einn eða fleiri af bönkunum keyptir af erlendum bönkum. Hinsvegar verði þeir þjóðnýttir í einu eða öðru formi. En þá lenda þeir í vandræðum með gjaldeyri. Lausnin á því kynni að vera að láta erlendu skuldirnar sigla sinn sjó og bjarga innistæðunum og íslensku skuldunum. Við það myndi hinsvegar gengi krónunnar hrapa enn meir en orðið er.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira